Fréttir

30
jún
2015

Esjuganga Ljóssins

 Það var flottur hópur sem mætti í fjölskyldugöngu Ljóssins 24.júní sl..í glampandi sól og stemningin var frábær..Alls komu 65 manns og fögnuðu þessum viðburði með okkur og meira en helmingur fóru alla leið að steini…ótrúlega duglegt fólk , í lok ferðar var svo sest inná á Esjustofu þar sem fólk fékk glæsilegar veitingar…takk fyrir daginn elsku Ljósberar

22
jún
2015

Fjölskylduganga Ljóssins við Esjurætur

 Fjölskylduganga: Miðvikudaginn 24. júní kl.13:00 í tilefni af 10 ára afmælisári Ljóssins. Hittumst við Esjustofu og göngum í rólegheitum upp hlíðar Esjunnar eins langt og hver og einn vill. Esjustofa verður opin með léttar veitingar á góðu verði. Þóra Jóhanna Hjaltadóttir fjallaleiðsögumaður leiðir gönguna og sérstakur gestur verður Þorsteinn Jakobsson göngugarpur og vinur Ljóssins. Fjölmennum með alla stóra sem smáa

Lesa meira

16
jún
2015

Reykjavíkurmaraþon 2015

  Innilegar þakkir til allra sem hlupu fyrir Ljósið…minnum á að það er ennþá hægt að styrkja inná hlaupastyrkur.is Hér er hægt að sjá alla sem ætla hlaupa fyrir Ljósið   

28
maí
2015

Slökunarnámskeið í Ljósinu

miðvikudagana 3. júní og 10. júní 2015 kl. 10:30 -12:00.  Skráning í síma 5613770 umsjón: Lilja Jónasdóttir   Fyrri tími: Kennd verður róandi öndun og einföld slökunartækni Síðari tími: Kennd verður sjónsköpun. Í lok hvors tíma er hópslökun sem byggir á aðferðum dáleiðslu. Markmiðið er að þátttakendur læri aðferðir (róandi öndun og slökun) til að hafa áhrif á líðan sína.

Lesa meira

21
maí
2015

Ljósið stækkar

 Þann 8. maí sl. var stór dagur í starfsemi Ljóssins, þegar skrifað var undir samning um nýja viðbyggingu sem verður ca. 100 fm. Nýja byggingin mun bæta alla aðstöðu mikið og verður m.a sett upp lyfta, fleiri viðtalsherbergi og sjúkraþjálfun. Það hefur skapast mikil sérþekking á endurhæfingu krabbameinsgreindra sl. 10 ár hér í Ljósinu. Við þökkum vinum okkar í Oddfellowreglunni

Lesa meira

30
apr
2015

Fyrirlestakvöld í Ljósinu

                                      Stuðningur skiptir máli þegar krabbamein er annars vegar Fyrirlestrakvöld fyrir alla fjölskylduna mánudagana 11 og 18 maí kl. 17:30 – 19:30   11. maí * Endurhæfing og stuðningur hvað hentar þér? – Erna Magnúsdóttir yfiriðjuþjálfi * Að vera maki – Einar Kárason rithöfundur * Að lifa lífinu lifandi – Guðrún Anna Jónsdóttir sálfræðingur  

Lesa meira

16
apr
2015

Nýtt námskeið með Geggu

Nýtt spennandi námskeið með Geggu. Hefst mánudaginn 27 apríl – 4 skipti Kl: 10:00-12:00 Verð 3.000 Á námskeiðinu mun Gegga leggja áherslu á: Hvernig hægt er að skapa sér meiri hamingju og vellíðan, sama hvað á gengur. Aðferðir til að draga úr kvíða og streitu eins og  hugleiðslur og aðferð Byron Katie;The Work.   Þjálfun í eigin ágæti og sjálfsást.  Byron Katie

Lesa meira

16
apr
2015

Styrking vonar

   

16
apr
2015

Aðalfundur 2015

Aðalfundur Ljóssins 2015 

31
mar
2015

Gleðilega páska