Skart sem skiptir máli – Ljósið x Hlín Reykdal

Ljósið x Hlín Reykdal

Ljósið og Hlín Reykdal hafa tekið höndum saman og hannað sérstakt „Ljósa-charm“  ásamt armböndum og hálsmenum.

Ljósið flytur brátt í nýtt og stærra húsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi og söfnum við nú fyrir tækjum í nýja líkamsræktarsalinn – Allur ágóði af skartinu rennur óskiptur í þá söfnun.

Þegar við leituðum upphaflega til Hlínar með þessa hugmynd bar það einmitt upp á afmælisdegi pabba hennar en hún missti pabba sinn, Jón Reykdal listmálara, úr krabbameini. Henni fannst því skrifað í skýin að vinna með Ljósinu og er að gefa alla sína vinnu. Allur ágóði af sölu skartsins rennur því til Ljóssins.

 

Tákn um stuðning og samstöðu

Form merkisins er þríþætt: Innsti hlutinn er logandi ljós, tákn fyrir lífið sjálft. Mannsmyndin sem umfaðmar ljósið og loks myndar ysti hlutinn skjól utan um ljósið. Loginn er því nokkuð lýsandi fyrir starfssemi Ljóssins, sem er stundum lýst sem skjóli í stormi krabbameins.

Takk fyrir að kaupa Ljósa-charm og styðja þannig við fólk sem greinist með krabbamein á Íslandi.

Saman erum við til staðar fyrir okkar mikilvægasta fólk.