Hvetur strákana til að mæta í Ljósið

eftir Maríu Ólafsdóttur

Birkir Már Birgisson greindist með krabbamein árið 2017, þá tæplega fertugur að aldri.

Birkir ásamt Dr.Helga Sigurðssyni, yfirlæknir í krabbameinslækningum eftir að Birkir fékk góðu fréttirnar að krabbameinið væri á brott

Með skurðaðgerð og níu mánaða lyfjameðferð var meinið á brott en í því ferli var ljóst að áhrif meðferða á líkamann yrðu umtalsverð. Birkir hóf að sækja endurhæfingu í Ljósið samhliða meðferðum sem hann segir hafa verið ómetanlegt, mikilvægt sé að grípa karlmenn snemma í ferlinu og hvetja þá til að mæta á staðinn til að byrja að byggja sig upp.

„Á þessum tíma starfaði ég sjálfstætt og þurfti að hætta því, þannig að fyrst hófst maður handa við að finna út hvaða aðstoð og úrræði væru í boði, t.a.m. varðandi bætur.“ Birkir fór í viðtal hjá félagsráðgjafa Krabbameinsfélagsins sem gaf honum margvíslegar upplýsingar og sagði honum meðal annars frá þjónustu Ljóssins. Í kjölfarið tók hann ákvörðun um að kynna sér starfið betur og mætti ásamt konu sinni á Langholtsveginn. „Ég fór fljótt að mæta reglulega í ræktina í stórum hópi karla, fór á námskeið og sótti ýmsa fyrirlestra, auk þess að vera duglegur að mæta í hádegismatinn á föstudögum með körlunum,“ segir Birkir, sem hefur starfað í ferðaþjónustu síðastliðin ár en starfaði áður á golfvöllum í nærri 20 ár.

 

Vill breyta hvernig karlmenn sjá Ljósið

„Það er stórt skref fyrir marga að koma hingað og þá kannski sérstaklega karlmenn. Það kann að hljóma undarlega en ég hef líkt þessu við tilfinninguna að hefja áfengismeðferð þar sem þessu fylgir ákveðin skömm. Því miður virðast karlmenn oft ekki leita sér aðstoðar fyrr en þeir eru langt leiddir andlega og komnir má segja á botninn. Þessu viljum við svo gjarnan breyta enda er þetta frábær staður þegar þú ert kominn inn og ekkert til að skammast sín fyrir. Við höfum reiknað gróflega að um þriðjungur karla sem leita í Ljósið leita þangað sjálfviljugir en hinir eru má segja dregnir á staðinn af maka eða ættingjum. Við heyrðum t.d. af tveimur sem voru úti að ganga með konunum sínum og þær plötuðu þá til að kíkja hingað inn,“ segir Birkir og bætir við að á döfinni sé nú að gefa út sérstakt fræðsluefni fyrir karlmenn þar sem einblínt er á makann, þannig að hann þekki til þjónustunnar sem er í boði.

Heppinn! Meirihluti karlmanna í Ljósinu kemur til endurhæfingar fyrir tilstuðlan maka. Hér er Birkir með konu sinni á góðri stundu.

„Krabbameinsmeðferð er langt og strembið ferli sem reynir mikið á sjálfan þig, sambandið við maka og samskipti við börnin. Það veitir ekki af utanaðkomandi hjálp í þessu verkefni því fáir fara í gegnum þetta ferli uppréttir allan tímann. Hausinn er líka oft manns versti óvinur og mikilvægt að hafa vettvang á borð við Ljósið þar sem maður getur opnað sig upphátt um eigin hugsanir og líðan, bæði við fagaðila og í hópi þeirra sem hafa gengið í gegnum það sama. Ég tel sérstaklega mikilvægt að koma karlmönnum sem allra fyrst inn í ákveðið prógramm en allir þeir karlmenn sem ég hef rætt við í Ljósinu eru á einu máli um að þeir hefðu átt að mæta fyrr. Enda skiptir grundvallarmáli að halda ákveðinni rútínu og fá félagsskap þar sem einveran meðan á krabbameinsmeðferð stendur verður heldur leiðigjörn,“ segir Birkir en hann hefur verið virkur þátttakandi í að byggja upp starf fyrir unga karlmenn í Ljósinu.

Birkir sótti ræktina í Ljósinu reglulega og segir að smám saman hafi safnast saman góður hópur karlmanna á svipuðu reki en þeir hafi verið duglegastir að mæta þegar fleiri en færri mæti og því sé mikilvægt að ná ákveðnum kjarna saman. Með nýju húsnæði, sem nýlega var tekið í gagnið, hafi einnig verið hægt að bæta mjög við þjónustuna og setja upp aðstöðu fyrir strákana þannig að þeir geti mætt og farið í ræktina, borðað og gripið svo í spil eða farið í t.d. pílu eða pool. Hann segir mikilvægt að vera með dagskrá alla daga en hugmyndin sé líka að reyna að hittast eitt kvöld aðra hverja viku til að koma til móts við þá sem eru í vinnu.

 

Klífur fjöll á ný

Birkir hefur náð að byggja upp fyrra þol að langmestu leyti þó hann eigi erfitt með gang en lætur það þó ekki stoppa sig í að klífa eitt og eitt fjall, þó að í það fari heilmikil orka.

Birkir hvetur karlmenn á öllum aldri til að mæta í Ljósið

„Ég fór í Ljósafossgönguna nú í vetur með Ljósinu og var þreyttur í um viku á eftir en það var allt í lagi. Nú heldur maður bara áfram veginn og ég ætla að halda áfram að sækja Ljósið til að leggja mitt af mörkum við að efla og þróa þar dagskrá fyrir okkur strákana,“ segir Birkir að lokum.

Var síðan gagnleg?
Nei, því miður

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.