Í kjölfar metsöfnunar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár tók stjórn Ljóssins ákvörðun um að leyfa þeim sem sækja endurhæfingu í Ljósið finna strax fyrir velvild þjóðarinnar með því að fella niður öll námskeiðsgjöld Ljósbera þessa önnina. „Þetta er einstakur árangur og vandfundið að finna svo mikinn samhug.“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins, og segir að einnig muni unga fólkinu vera
Margt smátt gerir eitt stórt! Í gegnum árin hefur Fjalar Hauksson fundið hversu miklu máli starf Ljóssins skiptir en móðir hans, Hrefna Sigurðardóttir, hefur sótt margvíslega þjónustu til okkar á Langholtsveginn. Í ár fagnaði Fjalar fertugsafmæli sínu og ákvað að því tilefni að afþakka allar gjafir og fá vini og vandamenn frekar til þess að gefa til starfs Ljóssins. Í vikunni
Kæru vinir, Það er með mikilli gleði sem við segjum ykkur frá því að heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að gera þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Fjármögnun Ljóssins hefur hingað til byggst á styrkframlagi frá Vinnumálastofnun og heilbrigðisráðuneytinu til eins árs í senn og söfnunarfé, en með þessu breytta flæði fjármagns frá ríkinu
Kæru vinir, Föstudaginn 4. október mun Elín Skúladóttir, skipuleggjandi ráðstefnunnar Vegan heilsa , koma til okkar í Ljósið með fyrirlestur um sama efni. Elín greindist með krabbamein og fór í gegnum lyfjameðferð og skurðaðgerð en samhliða því lagðist Elín í rannsóknir um vegan fæði. Elín mun segja sína sögu um breytingu hennar og fjölskyldunnar yfir í vegan fæði og varpa
Það var kátt á hjalla í gær þegar Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íslandsbanki buðu góðgerðafélögum og öðru góðu fólki í létta uppskeruhátíð í kjölfar Reykjavíkurmaraþons 2019. Frá Ljósinu mættu Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður, og Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri, til þess að taka móti viðurkenningu en Ljósið safnaði mest allra félaga í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2019. Lokaupphæðin, þegar einnig höfðu verið taldar
Ný stundaskrá tekur gildi 2. september en þar, eins og alltaf, bjóðum við upp á úrval námskeiða, handverks, líkamsræktar og stuðnings. Smellið hér til þess að skoða nýju stundaskránna en nú má sjá dagskránna á tveimur síðum. Sálfélagslega endurhæfingu má sjá á fyrri síðunni og líkamlega endurhæfingu á þeirri seinni. Við bendum ykkur sérstaklega á að lesa um breytt fyrirkomulag
Rabbfundur um stofnun stuðningshóps fyrir fólk sem greinst hefur með eitlakrabbamein mun fara fram hjá Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins fimmtudaginn 5. september milli 16:30 – 18:00. Signý Vala Sveinsdóttir sérfræðingur í blóðkrabbameinum flytur erindi ásamt Höllu Grétarsdóttur sérfræðingi í hjúkrun. Kannaður verður áhugi þátttakenda á því að stofna stuðningshóp þar sem markmiðið er að hittast reglulega, bjóða upp á fræðslu og nýta
Ný stundatafla Ljóssins hefur nú verið gefin út. Við biðjum ykkur að athuga breytingar á ýmsum tímum, skoða nýjungar og gefa nýju innritunarferli í líkamlega endurhæfingu Ljóssins gaum. Breytt innritunarferli í líkamlega endurhæfingu í Ljósinu: Óski fólk eftir að nýta sér hreyfingaúrræði þarf það að skrá sig í hópa hjá þjálfurum. Það er gert til að þjálfarateymið geti betur haldið
Kæru vinir, Nú er liðin tæp vika frá því Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og við starfsfólkið erum smátt og smátt að komast aftur niður á jörðina eftir hlaupagleðina sem hjá okkur hefur ríkt. Undirbúningurinn í ár hófst þegar hlaupahópurinn okkar hljóp vikulega um Laugardalinn og þegar líða tók á sumarið sáum við að á hverjum degi bættist fólk við í hópinn okkar
Vertu Ljósavinur á meðan skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons stendur yfir og lukkan gæti leikið við þig! Hlaupagleðin er við völd í Ljósinu þessa dagana og að því tilefni munu nokkrir nýskráðir Ljósavinir fá skemmtilega vinninga frá samstarfsaðilum Ljóssins. Þeir sem ekki komast á hátíðina en skrá sig á meðan hún stendur yfir komast líka í pottinn. Hér má skrá sig sem mánaðarlegan