Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2022 er hafin

Nú geta allir þeir sem ætla að hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár skráð sig á Hlaupastyrkur.is

Áheitasöfnun í gegnum maraþonið hefur verið mikilvæg tekjuöflun fyrir starfsemi Ljóssins en söfnunarleiðin hefur til að mynda gert okkur kleift að fella niður allan kostnað krabbameinsgreindra við líkamsrækt, námskeið, fræðslu og margt annað. Árið 2019 setti Ljósið, ásamt 180 öðrum góðgerðarfélögum, áheitamet og hafa þeir fjármunir sem söfnuðust farið nærri að fullu í að standsetja glæsilegt nýtt hús sem komið var fyrir á lóð okkar.

Framundan eru mörg stór verkefni sem við vonum að við náum að hrinda af stað með söfnuninni í ár.

Við bendum líka öllum á að 20% afsláttur er af skráningu til 15.júní

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.