Zumba tími í Ljósinu 6. apríl

Nú ryðjum við tækjunum til hliðar, hækkum í græjunum og tökum sporið.

Pop-up tími í Zumba verður í tækjasal Ljóssins miðvikudaginn 6. apríl klukkan 14:30.

Zumba er danstími þar sem stuð og suðræn stemning er allsráðandi. Tími fyrir alla sem elska að dansa þar sem sporin eru mjög einföld. Þú gleymir þér í stuði og stemningu.

Alda María Ingadóttir, íþróttafræðingur og zumbakennari ætlar að leiða okkur í gegnum sporin.

Hreyfiflæði fellur niður þennan dag og Eftir brjóstaaðgerð styttist í annan endann vegna þessa og hefst klukkan 14:00 og er búinn 14:30.

Við hlökkum til að lyfta okkur aðeins upp með ykkur í þessum fyrsta pop-up tíma vorsins!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.