heida

16
ágú
2022

Viltu hlaupa í Ljósabol?

Nú styttist í Reykjavíkurmaraþonið sem fram fer 20.ágúst næstkomandi. Við erum ótrúlega stolt af hlaupurunum okkar og þakklát öllum sem hlaupa fyrir Ljósið. Að venju fá allir okkar hlaupara bol merktan Ljósinu til að hlaupa í. Afhending bola fer fram á stórsýningunni FIT & RUN sem fram fer í Laugardalshöllinni. Opnunartími sýningarinnar er sem hér segir: Fimmtudagur 18.ágúst kl. 15:00

Lesa meira

11
ágú
2022

Pastaveisla mánudaginn 15.ágúst

Að venju blásum við til pastaveislu fyrir Reykjavíkurmaraþon. Við bjóðum hlaupurum Ljóssins að koma í heimsókn til okkar á Langholtsveg 43 mánudaginn 15.ágúst kl:17.00.  Við byrjum hittinginn á að hlusta á léttan fyrirlestur og hlaupa pepp, en hann Snorri Björnsson langhlaupari, ljósmyndari og podcastari ætlar að koma okkar fólki í réttan gír fyrir hlaupið. Hún Daiva okkar dásamlega matselja ætlar að

Lesa meira

10
ágú
2022

Athugið – Ný stundaskrá líkamlegrar endurhæfingar

Kæru vinir, Mánudaginn 15.ágúst tekur ný og spennandi stundaskrá líkamlegrar endurhæfingar gildi. Hana má skoða á vefsíðu Ljóssins hér. Athugið að hreyfiflæði hefst þó ekki fyrr en 23.ágúst. Nú er hægt að skipuleggja hreyfingu haustsins og stuðla þannig að heilbrigðari likama og sál. Með kærri kveðju, Þjálfarar Ljóssins  

28
júl
2022

Lokað í Ljósinu á Frídegi Verslunarmanna

Kæru vinir, Ljósið verður lokað á Frídegi Verslunarmanna mánudaginn næstkomandi 1.ágúst. Við hvetjum  alla til að njóta dagsins, en huga þó vel að líkama og sál. Við opnum aftur þriðjudaginn 2.ágúst kl. 8:30. Góða helgi!

26
júl
2022

SideKick Health rannsókn í samstarfi við Ljósið og Landspítala

Í vikunni fór af stað rannsókn SideKick Health á smáforriti formlega af stað í Ljósinu. Er smáforritið sérstaklega hannað til að koma til móts við þarfir kvenna í meðferð við brjóstakrabbameini. Um er að ræða samstarfsverkefni SideKick Health, Ljóssins og Landspítalans. Smáforritinu er ætlað að styðja við breytingar á lífsháttum sem auka lífsgæði. Er þetta önnur rannsóknin sem SiceKick Health

Lesa meira

14
júl
2022

Ósk Laufdal málar af ástríðu til styrktar Ljósinu

Við tókum hús á myndlistakonunni Ósk Laufdal á dögunum á einu elsta kaffihúsi borgarinnar, Café Milano. Ósk hefur alla tíð haft áhuga á myndlist og hverskyns handverki, en áður en myndlistin fangaði hana þá hannaði hún og framleiddi minjagripi og seldi í helstu minjagripaverslunum landsins. Það var árið 2015 sem hún byrjaði að mála og tók þá meðvitaða ákvörðun eins

Lesa meira

13
júl
2022

Átt þú myndverk og/eða möppu í Ljósinu?

Kæru vinir, Nú erum við að undirbúa og gera klárt fyrir spennandi haust í Ljósinu. Því biðlum við til þeirra sem eiga myndir og/eða möppur í handverksrými Ljóssins að renna við og taka með heim við tækifæri. Eins dásamlegt og það er að hafa fallegu myndverkin uppi við til sýnis þá þurfum við að rýma fyrir nýjum verkum. Með fyrirfram

Lesa meira

10
jún
2022

Flugukast á Klambratúni

Mánudaginn 13.júní kl: 19.00 hittist áhugafólk um fluguveiði á Klambratúni við Kjarvalsstaði á flugukastæfingu. Mælst er með að hver komi með eigin stöng, en hægt er að prufa hjá kennara ef ekki er komið með stöng. Hentar byrjendum jafnt sem lengra komnum. Nánari upplýsingar og skráning í móttöku Ljóssins.  

30
maí
2022

Rokkum gegn krabbameini – tónleikar á Húsavík til styrktar Ljósinu

Tónasmiðjan á Húsavík stóð fyrir glæsilegum rokktónleikum í Húsavíkurkirkju sunnudaginn 29.maí. Mikil tónlistarveisla þar sem öllu var til tjaldað, flytjendur á tónleikunum voru á öllum aldri og tókst einstaklega vel til. Heiðursgestur var hinn landsþekkti Kristján Gíslason sem tók lagið fyrir Húsvíkinga. Ágóði tónleikanna rann til Krabbameinsfélag Þingeyinga og Ljóssins. Við hjá Ljósinu erum afskaplega þakklát fyrir þetta fallega framtak.

18
maí
2022

Kiwanisklúbburinn Eldey færir Ljósinu rausnarlegan styrk

Kiwanisklúbburinn Eldey hélt á dögunum upp á 50 ára afmæli sitt. Af því tilefni færði klúbburinn Ljósinu rausnarlegan styrk. Brynjólfur Eyjólfsson rekstrar- og fjármálastjóri Ljóssins veitti styrknum viðtöku við hátíðlega athöfn. Styrkurinn nýtist vel í ört stækkandi starfsem Ljóssins og erum við þeim afskaplega þakklát.