Ljósablaðið 2026 er komið út
Í dag kemur Ljósablaðið 2026 út í rafrænu formi. Við bjóðum þér að koma þér vel fyrir, hella upp á góðan bolla og fletta blaðinu, sem er fullt af hlýju, fróðleik og mannlífi úr starfinu okkar.
Hvað er í blaðinu?
Í blaðinu er að finna einlæg viðtöl við ljósbera sem segja sögu sína á eigin forsendum, sem og viðtöl við heilbrigðisstarfsfólk. Þá er rætt við ljósbera og iðjuþjálfa sem prjóna af natni fyrir fólk í viðkvæmri stöðu.
Fagaðilar okkar skrifa greinar á mannamáli um ýmsa þætti heildstæðrar endurhæfingar, meðal annars um sjúkraþjálfun vegna úttaugaeinkenna, gómsæta næringarmola og meðvitaða útiveru í Náttúrunæringu og Lyngvist.
Auk þess lítum við yfir árið að baki í Ljósinu, lesum pistil framkvæmdastýru og sjáum myndir og lesum um flutningana frá Langholtsvegi að Gylfaflöt, nýja heimilið fyrir starfsemina.
Blaðið er að sjálfsögðu prýtt fjölda mynda sem fanga hversdaginn, sköpunina og samveruna hjá okkur, þar á meðal glæsilegum myndaþætti frá Reykjavíkurmaraþoninu.
Takk fyrir að vera með okkur
Við þökkum öllum ljósberum, heilbrigðisstarfsfólki, fagaðilum og styrktaraðilum sem lögðu blaðinu lið og deildu með okkur. Samfélagið í Ljósinu er það sem gerir starfið mögulegt.
Njótið lestursins!
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






