Fjölmennt var við hátíðlega opnun á nýju 1.300 fermetra húsnæði Ljóssins að Gylfaflöt 5 síðasta fimmtudag. Áætlað er að um 600 manns hafi lagt leið sína í húsið, þar á meðal ráðamenn, velunnarar og fjöldi núverandi og fyrrverandi Ljósbera.
Frá kirkjukjallara í 1.300 fermetra heimili
Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, flutti ávarp þar sem hún leit yfir farinn veg. Starfsemin hófst fyrir 21 ári í litlu rými í kjallara Neskirkju, flutti þaðan á Langholtsveg þar sem Ljósið átti heimili í 19 ár, og er nú komin í glæsilegt, sérhannað húsnæði í Grafarvogi.
„Þetta hús er auðvitað miklu meira en fermetrar, veggir og falleg herbergi, þetta hús snýst um fólkið sem hingað kemur,“ sagði Erna í ávarpi sínu.
„Á þessum tuttugu og einu ári hefur gríðarlegur fjöldi fólks komið til okkar á einum erfiðasta tíma lífs síns, fólk sem hefur þurft að byggja sig upp að nýju, líkamlega, andlega og félagslega. Við höfum fengið að ganga með því hluta leiðarinnar og séð svo ótal mörg taka skrefin aftur út í lífið, til fjölskyldunnar, vinnunnar og samfélagsins. Það er í raun þetta sem Ljósið snýst um: að hjálpa fólki að finna styrkinn aftur á eigin forsendum.“ sagði Erna.
Gríðarleg fjölgun kallaði á stærra rými
Þörfin fyrir heildræna endurhæfingu hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Árið 2020 voru árlegar komur í Ljósið um 19 þúsund en voru orðnar um 32 þúsund á síðasta ári, sem nemur nærri 70 prósenta fjölgun á örfáum árum. Með nýja húsnæðinu skapast nauðsynlegt rými til að mæta vaxandi eftirspurn, styðja við fjölskyldur og þróa þverfaglega endurhæfingu til framtíðar.
Ljósið hefur fest kaup á húsnæðinu og nemur kostnaður við kaup og nauðsynlegar breytingar hundruðum milljóna króna. Verkinu er því ekki lokið, en Ljósið leitar áfram eftir stuðningi samfélagsins til að tryggja eignarhald á húsinu til frambúðar.
„Þegar ég stóð í litla rýminu í kjallara Neskirkju fyrir 21 ári síðan hefði mig líklega ekki órað fyrir því að einn daginn myndum við standa hér,“ sagði Erna. „En við stöndum hér vegna þess að samfélagið hefur staðið með okkur. Þetta hús er ekki bara hús Ljóssins, það er hús sem samfélagið hefur hjálpað okkur að byggja upp. Nú er okkar verkefni að fylla það af því sem hefur alltaf verið hjartað í Ljósinu: fagmennsku, hlýju, von og trú á lífið framundan.“

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






