Fréttir

14
jan
2016

Við erum komin heim !

Við erum alsæl með fallega heimilið okkar að Langholtsvegi 43…verið velkomin!

5
jan
2016

Á nýju ári…

  Gleðilegt nýtt ár kæru Ljósberar. Innilegar þakkir fyrir samskiptin á árinu 2015, alla umhyggju, samhug og hjálpsemi við Ljósið okkar. Megi nýtt ár færa okkur farsæld og frið og við hlökkum til að taka aftur á móti ykkur í fallegu og endurbættu húsnæði, þar sem hugsjón okkar er að hjálpa og efla lífsgæði. Það er allt komið á fullt

Lesa meira

14
des
2015

Frístundaheimilið Neðstaland

Ljósinu var á dögunum færð peningagjöf frá Frístundaheimilinu Neðstalandi  í Fossvogi. Hressir krakkar á aldrinum 6-9 ára héldu foreldradag með hæfileikasýningu og veitingum. Fólki bauðst að setja frjáls framlög í sparibauk þar sem safnaðist álitleg upphæð.  Börnin ákváðu að Ljósið myndi njóta góðs af. Frábært framtak hjá flottum krökkum og Ljósið þakkar þeim innilega fyrir gjöfina sem kemur sér vel

Lesa meira

3
des
2015

Spjall og fræðsla um Vatnaveiði

Fimmtudaginn 10.des kl 13:00  kemur Kristján Friðriksson og spjallar um ýmislegt sem viðkemur vatnaveiði og kynnir bókina Vatnaveiði árið um kring sjá nánar hér 

3
des
2015

Litagleðin með Hrönn

  Minnum litaglaða á að hún Hrönn frá Litagleði kemur aftur til okkar fimmtudaginn 10. Des  kl 13:00  

30
nóv
2015

Tilkynning og jólakveðja til þín frá okkur

  Kæru Ljósberar, aðstandendur og velunnarar Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með þökk fyrir góða samveru og samvinnu á árinu sem er að líða.Vonum að þið eigið yndislega jóla og nýárshátið.   Vegna þess að verið er að stækka húsnæði Ljóssins á Langholtsvegi 43,  þá liggur starfsemin niðri tímabundið. Við munum opna aftur fljótlega í

Lesa meira

23
nóv
2015

Ljósið lýsti upp Esjuna

 Það var ótrúlega yndisleg stemning í Ljósafossi  laugardaginn 21.nóv sl  á Esjunni. Innilegar þakkir til Fjallasteina (Þorsteins Jakobssonar ) sem skipulagði þessa göngu fyrir Ljósið.  Þessi stórkostlega mynd er tekin af ljósberanum Ragnari Th. Sigurðssyni. Innilegar þakkir til allra sem tóku þátt og gerðu þetta mögulegt. Smelltu hér til að skoða fleiri myndir

16
nóv
2015

Breytingarnar á Langholtsveginum

  Allt að gerast í Ljósinu á Langholtsveginum…Byggingin verður öll hin glæsilegasta og mikið af nýju plássi, það eru iðnaðarmenn á fullu alla daga..hlökkum til að komast aftur í yndislegt og endurbætt hús. Um leið viljum við þakka Oddfellowreglunni á Íslandi fyrir höfðingjalega gjöf í tilefni af 10 ára afmæli Ljóssins. Viðbyggingin mun rúma lyftuhús, nýjan stigagang, sjúkraþjálfun og fleiri

Lesa meira

12
nóv
2015

Leshópur í Ljósinu

Leshópurinn er á föstudögum kl.13.00  Langar þig að njóta þess að hitta aðra bókaorma og fá hvatningu til að lesa örlítið meira en venjulega. Þá er leshópur Ljóssins tilvalinn fyrir þig. Þađ er alltaf glatt á hjalla í Leshópi Ljóssins sem hittist á mánudögum kl. 13:15. Næst verđur lesin bókin "Bara ef …" eftir Jónínu Leósdóttur. Allir áhugasamir velkomir, líka

Lesa meira

12
nóv
2015

Jafningahópur fyrir unga maka 20-45 ára sem eru aðstandendur

Ljósið byrjar aftur með jafningjafræðslu og stuðning fyrir unga maka hér í Ljósinu. Markmið með hópnum: Hitta jafningja sem eiga maka sem hefur greinst með krabbamein.  Nánustu aðstandendur hafa oft á tíðum jafn mikla þörf fyrir að fá að tjá sig og hitta aðra í sömu sporum eins og þeir sem greinast.  Tilgangurinn er að spjalla saman  og fræðast.  Kristín

Lesa meira