Ljósablaðið 2019

Guðný ljósberi þverar landið, Sigrún Þóra sálfræðingur þróar hugbúnaðarlausn og auka þarf fræðslu tengda krabbameinsgreindum á vinnumarkaði eru meðal spennandi umfjöllunarefna 13. útgáfu Ljósablaðsins sem nú er komið út.

Þar má einnig finna greinar eftir fagfólk Ljóssins, viðtöl við Ljósbera, brot úr  verkefnum og viðburðum sem Ljósið hefur staðið fyrir og tekið þátt í frá því að síðasta blað kom út.

Í ár er blaðið prentað í færri eintökum en það er hluti af grænni áherslu Ljóssins. Slíkt leyfir okkur einnig draga úr kostnaði og setja fjármagn frekar inn í endurhæfinguna. Blaðið mun þó liggja víða frammi og einnig geta áhugasamir nálgast blaðið hjá okkur í Ljósinu að Langholtsvegi 43, eða með því að senda okkur línu eða hringja í síma 561-3770 og óska eftir að fá það sent.

Blaðið má nú lesa í þægilegu veflestrarformi á vefnum okkar.

Ritstjóri og höfundur efnis er María Ólafsdóttir og er blaðið prentað í Litlaprenti.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.