Föstudaga fram að jólum verða máluð vönduð keramik jólatré hér í Ljósinu. Trén koma í tveimur stærðum og fást keypt hjá okkur í móttökunni. Margir litir af akríl í boði svo þátttakendur geta látið ímyndunaraflið fá lausan tauminn. – Lítið keramik tré 4200 krónur – Stórt tré 4600 krónur – Perustæði 2800 krónur Við hlökkum til að eiga með ykku
Nú er glatt á hjalla í Ljósinu og við notum hvert tækifærið til að setja handverkið í hátíðlegan brag. Fram að jólum verðum við því með kennslu í því hvernig breyta má einföldum kertum í falleg listaverk. Kennslan verður í boði á miðvikudögum frá 9:30-12:30. Við verðum með kerti á góðu verði sem og úrval af fallegum pappír. Ragnheiður verður
Rakel, Sara Líf, Arnar Leó og Karítas Mía eru kraftmikil fjölskylda sem ber hlýjar taugar til Ljóssins. Rakel er dóttir Þorsteins Jakobssonar sem er forsprakki Esjugöngunnar og því eiga þau ekki langt að sækja ævintýraþránna og drifkraftinn. Í tilefni Ljósafossins okkar niður Esjuna kíktu þau við hjá okkur á Langholtsveginum og spjölluðu við okkur um afhverju þau taka þátt á
Ferðalög ljósbera, samvinna við Barnaspítalann og fyrsta heimsókn heilbrigðisráðherra í Ljósið eru meðal spennandi umfjöllunarefna 12. útgáfu Ljósablaðsins sem nú er komin út. Þar má einnig finna greinar eftir fagfólk Ljóssins, viðtöl við Ljósbera, brot úr verkefnum og viðburðum sem Ljósið hefur staðið fyrir og tekið þátt í frá því að síðasta blað kom út. Blaðið er á leiðinni til
Útskriftarnemar af snyrtibraut FB óskuðu eftir að fá að koma í Ljósið og æfa sig í að farða þau fögru flóð sem hingað koma. Að sjálfsögðu var tekið fagnandi við slíkri beiðni. Því er skemmst frá að segja að hingað komu átta efnilegir verðandi förðunarfræðingar sem drógu fram það besta í módelum sínum. Módelunum þótti mikið til koma og var
Á fimmtudaginn kemur, þann 15. nóvember, verður fyrirlestur í Ljósinu um lífeyrismál og hvernig starfsmenn fjármálastofnanna geta komið til móts við viðskiptavini þegar áföll banka uppá. Fyrirlesturinn hefst kl. 13 og er í boði Íslandsbanka og eru það starfsmenn hans sem verða með erindin. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Nú fást til sölu falleg tækifæriskort sem eru hönnuð af einstaklingum sem hafa sótt endurhæfingu í Ljósinu. Listamennirnir eru Sigrún Einarsdóttir, Hrönn Pétursdóttir og Melkorka Matthíasdóttir. Í hverjum pakka eru 6 kort og með þeim fylgja umslög. Hver pakki kostar 2000 krónur og fæst í móttöku Ljóssins.
Jafningjafræðsla fyrir unga maka fer aftur af stað í næstu viku. Að þessu tilefni fengum við góðfúslegt leyfi hjá Karli Hreiðarssyni til að birta eldri færslu þar sem hann segir ávinning af slíkum stuðningi ómetanlegan. Vorið 2007 greindist konan mín með brjóstakrabbamein. Við vorum (og erum enn!) ung þegar það kom upp, hún rétt orðin 27 ára og ég árinu eldri.
Athugið uppfærð dagsetning! Hinn árlegi Ljósafoss niður hlíðar Esjunnar mun eiga sér stað laugardaginn 1. desember næstkomandi. Þar mun stór hópur göngfólks ganga af stað klukkan 15:00 upp að Steini og fara svo niður með höfuðljós og mynda fallegan Ljósafoss. Er þetta gert til að minna á mikilvægi starfsemi Ljóssins sem er endurhæfingar-og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Björgunarsveitin
Fimmtudaginn 1. nóvember n.k. fáum við góða gesti í heimsókn til okkar í Ljósið. Það eru forsvarsmenn Bergmáls, líknar- og vinafélags, en tilgangur félagsins er m.a. að hlúa að krabbameinssjúkum. Heimsókn þeirra er jafnframt liður í fjáröflun félagsins og því koma þau hlaðin gómsætum sultum og hugsanlega einhverju fleiru sem þau bjóða gestum og gangandi að kaupa. Þetta er í