Fréttir

15
maí
2026

Viðburður Ljósið x Hlín Reykdal (MYNDIR)

Hjartans þakkir fyrir frábærar móttökur á viðburðinum okkar síðasta þriðjudag! Það var yndislegt að sjá hversu margir mættu og vildu styðja við starfsemi Ljóssins. Á viðburðinum frumsýndum við okkar eigið Ljósa charm sem hannað var í samstarfi við skartgripahönnuðinn Hlín Reykdal og einnig var auglýsingaherferð verkefnisins frumsýnd. Við gætum ekki verið stoltari af útkomunni! Með þessari herferð erum við að

Lesa meira

15
maí
2026

Nemendur í Snælandsskóla styrkja Ljósið

Í vikunni fór Ljósið í heimsókn í Snælandsskóla þar sem nemendur héldu góðgerðardag til styrktar góðu málefni. Eftir kosningu meðal nemenda var ákveðið að allur ágóði dagsins myndi renna óskiptur til Ljóssins. Nemendur skólans stóðu sig frábærlega í söfnuninni og alls söfnuðust 493.823 krónur. Suheel Mahad Omar, nemandi í 10. bekk, sem afhenti styrkinn fyrir hönd nemenda til Ernu Magnúsdóttur,

Lesa meira

13
maí
2026

Lokað á Uppstigningardag

Kæru vinir, Lokað verður í Ljósinu á morgun 14. maí. Við opnum aftur á föstudag með heitt á könnunni og marga dagskrárliði.

12
maí
2026

Skart sem skiptir máli | Ljósið x Hlín Reykdal

Nú hefur Ljósið ýtt úr vör nýju kynningarverkefni með yfirskriftina: Skart sem skiptir máli Verkefnið fór formlega í loftið nú fyrr í dag með útgáfuhófi og afhjúpun á skartinu sem fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans með pompi og prakt! Á opnunarviðburðinum gafst gestum kostur á að heyra hvernig þetta fallega verkefni kom til, festa kaup á skartgripum og styrkja um

Lesa meira

8
maí
2026

Nemendur í Verzlunarskóla Íslands safna 700.000 kr

Góðgerðarráð NFVÍ (Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands) safnaði glæsilegum styrk, alls 700.000 kr., til styrktar Ljósinu. Ákvörðunin um að styrkja Ljósið kom bæði frá ráðinu sjálfu og samnemendum þeirra, en þegar leitað var eftir hugmyndum að mikilvægu málefni kom Ljósið hvað oftast upp.   Fjáröflunin fór fram með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti, meðal annars með styrkjum frá fyrirtækjum og áheitum tengdum ýmsum

Lesa meira

29
apr
2026

Lokað í Ljósinu 1. maí

Lokað verður í Ljósinu á baráttudegi verkalýðsins föstudaginn 1. maí næstkomandi. Við hvetjum ykkur til þess að styðja verkalýðshreyfinguna og njóta dagsins. Við sjáumst svo aftur hress eftir helgina.

22
apr
2026

Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri – Hittingur 5. maí

Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri ætlar að hittast þriðjudaginn 5. maí kl. 13:00. Ferðinni er heitið í Alþingishúsið. Hittumst við aðalinngang Alþingishússins og að venju fáum við okkur kaffi saman á eftir. Áhugasamir beðnir að skrá sig í móttöku Ljóssins.

15
apr
2026

Sumardagurinn fyrsti – Lokað í Ljósinu

Við í Ljósinu ætlum að fagna því að sumarið sé formlega komið og því er lokað hjá okkur Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl en við verðum hér aftur á föstudaginn. Þökkum ykkur öllum innilega fyrir veturinn og hlökkum til að eyða sumrinu með ykkur.

14
apr
2026

Ljósið x Hlín Reykdal – Nýtt samstarfsverkefni

Ljósið og Hlín Reykdal skartgripahönnuður kynna fallegt samstarfsverkefni. Með sannri ánægju kynnum við stolt nýtt fjáröflunarverkefni: Ljósið x Hlín Reykdal. Hlín er með sína eigin skartgripalínu: Charms by Hlín Reykdal og nú hefur hún hannað sérstakt „charm“ fyrir Ljósið sem við hefjum brátt sölu á, ásamt armböndum og hálsmenum. Þegar við leituðum upphaflega til Hlínar með þessa hugmynd bar það

Lesa meira

13
apr
2026

Peer Group Special – Nature and Relaxation

The course will take place on Monday 20th and 27th April at 10:00-11:45 and is conducted in English. It is meant for everybody who wants to find new ways of relaxing, find strength and inspiration from nature, meet peers in similar situation or just do something fun together. The course is in two-parts: In the first class we will do

Lesa meira