Brátt opnum við dyrnar á nýja heimili Ljóssins

Við höfum verið á fullu að pakka niður, flytja dót og koma okkur fyrir í nýja heimili Ljóssins á Gylfaflöt 5. Það er góð stemning meðal starfsfólks og allir orðnir spenntir að geta opnað húsið fimmtudaginn 1. október.

Við söknum þess að hafa ykkur yndislega fólk í húsinu með okkur, en það styttist óðum í að húsið fyllist af lífi og hlýju. Við hlökkum svo til að sýna ykkur nýju aðstöðuna og skapa saman nýjar minningar.

Hér koma nokkrar skemmtilegar myndir frá síðustu dögum.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.