Í tilefni af bleikum október stendur Garðasókn fyrir glæsilegum styrktartónleikum í Vídalínskirkju, sunnudaginn 25. október kl. 17:00. Yfirskrift tónleikanna er „Bleikur djass“ og rennur allur aðgangseyrir óskiptur til endurhæfingarstarfs Ljóssins. Samfélagið okkar er það sem gerir starfið í Ljósinu mögulegt. Framtak sem þetta skiptir sköpum til þess að við getum haldið áfram að taka á móti fólki með hlýju og
Okkur í Ljósinu langar að vekja athygli á gagnlegum og notalegum viðburði sem fer fram hjá Eirbergi og Stuðlabergi á mánudaginn kemur, 12. október. Viðburðurinn er sérstaklega hugsaður fyrir konur sem hafa farið í brjóstaaðgerð og vilja kynna sér þau úrræði sem í boði eru – á sínum eigin forsendum. Gestur kvöldsins er Lene Heiberg, sérfræðingur frá Amoena. Hún mun
Núvitund snýst um að vita hvað er að gerast innra með okkur á meðan það er að gerast án þess að grípa inn í það. Rannsóknir benda í vaxandi mæli til þess að núvitund ýti undir andlega og líkamlega vellíðan og geri okkur betur í stakk búin til að takast á við áskoranir lífsins. Þessi nálgun hefur verið notuð um
Krabbamein snertir ekki aðeins þann sem greinist, heldur alla fjölskylduna — og oft er sagt að krabbamein sé fjölskyldusjúkdómur. Það getur reynt á að standa við hlið ástvinar í gegnum greiningu og meðferð, og ekki síður mikilvægt að aðstandendur hugi að eigin líðan á sama tíma, enda erfitt að vera stuðningur fyrir aðra ef maður gleymir að standa með sjálfum
Þegar einn fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein breytist lífið hjá öllum á heimilinu. Ungmenni standa oft frammi fyrir nýjum og krefjandi aðstæðum og því er mikilvægt að þau fái rými og verkfæri til að hlúa að sér á sínum eigin forsendum. Í haust mun Ljósið, í samstarfi við KVAN, bjóða upp á tvær uppbyggilegar vinnustofur fyrir unga aðstandendur á aldrinum 14-17
Flutningar eru hafnir hjá okkur og verður mikið um umferð sendiferðabíla fyrir utan hjá okkur þar sem verið er að flytja húsgögn, tæki og tól á milli húsa. Við ætlum því að loka bílaplaninu hjá okkur til að auðvelda aðgengi og liðka þannig fyrir sem og auka öryggi okkar allra sem göngum um planið. Þau sem eiga erfitt með gang
Við í Ljósinu erum enn að jafna okkur á gleðinni eftir helgina. Samfélagið okkar sýndi svo sannarlega sinn hlýjasta hug í Reykjavíkurmaraþoninu í ár þar sem aldrei áður hefur safnast jafn mikil upphæð til stuðnings starfinu samtals 37.958.599 kr. Með ykkar aðstoð getum við haldið áfram að bjóða upp á gjaldfrjálsa og þverfaglega endurhæfingu á forsendum hvers og eins. „Ég
Fyrsti hausthittingur jafningjahóps kvenna 46 ára og eldri verður 1.september kl. 13:00. Við hittumst við Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ og förum á sýningu Thelmu Bjarkar og sýninguna Saumó. Á eftir fáum við okkur gott kaffi saman að venju. Skráning í móttöku Ljóssins.
Í ágúst fyllast götur borgarinnar af fólki sem hleypur til góðs í Reykjavíkurmaraþoninu. En það eru til fleiri leiðir til að leggja málefnum lið en að reima á sig hlaupaskóna. Hönnuðurinn og Ljósberinn Tanja Levý ákvað að nýta sköpunarkraftinn til að safna fyrir Ljósið, þar sem hún vinnur nú að endurhæfingu sinni. Á Menningarnótt mun hún sýna og selja hönnun
Við minnum á að félög sem eru á almannaheillaskrá veita skattafrádrátt á áheitum Hlaupastyrks til þeirra sem skrá nafn og kennitölu á sína kvittun í samræmi við lög um tekjuskatt. Eftir að greiðsla hefur átt sér stað er boðið upp á að bæta við viðbótarupplýsingum – netfang, kennitala og nafn. Mikilvægt er að fylla þetta út til að eiga kost