Styrkjandi vinnustofur fyrir unga aðstandendur í samstarfi við KVAN

Þegar einn fjölskyldumeðlimur greinist með krabbamein breytist lífið hjá öllum á heimilinu. Ungmenni standa oft frammi fyrir nýjum og krefjandi aðstæðum og því er mikilvægt að þau fái rými og verkfæri til að hlúa að sér á sínum eigin forsendum.

Í haust mun Ljósið, í samstarfi við KVAN, bjóða upp á tvær uppbyggilegar vinnustofur fyrir unga aðstandendur á aldrinum 14-17 ára. Markmiðið er að þátttakendur fái tækifæri til að auka sjálfstraust, efla trúnna á eigin getu og læra aðferðir til að halda góðu jafnvægi í lífinu.

Vinnustofurnar eru stakar, sem þýðir að hægt er að mæta á aðra eða báðar, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. Til að gera skrefið enn auðveldara er ungmennum meira en velkomið að taka vin með sér á námskeiðið — því það getur verið ómetanlegt að hafa kunnuglegt andlit við hlið sér.

Dagskrá haustsins:

  • 19. október: Þægindahringurinn og Lífshjólið. Skoðað hvað okkur þykir þægilegt, hvað er krefjandi og hvernig við setjum okkur markmið í takt við það.
  • 16. nóvember: Styrkleikavinnustofa. Farið yfir niðurstöður úr styrkleikaprófi og skoðað hvernig við getum nýtt okkar helstu styrkleika í daglegu lífi.

Foreldri ungmennis sem hefur setið námskeiðið sagði nýlega: „Þetta námskeið hefur hjálpað okkur gríðarlega mikið. Þó svo að ungmennið þitt sé á góðum stað í dag, getur komið upp kvíði eða depurð seinna meir, og þá er svo gott að hafa þessi verkfæri í höndunum.“

Vinnustofurnar fara fram á mánudögum kl. 16:00-18:00 í Ljósinu og eru að fullu endurgjaldslausar. Umsjón hefur Ingveldur Gröndal, þjálfari og ráðgjafi hjá KVAN.

Nánari upplýsingar og skráning fara fram í síma 561-3770

Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.