Flutningar eru hafnir hjá okkur og verður mikið um umferð sendiferðabíla fyrir utan hjá okkur þar sem verið er að flytja húsgögn, tæki og tól á milli húsa.
Við ætlum því að loka bílaplaninu hjá okkur til að auðvelda aðgengi og liðka þannig fyrir sem og auka öryggi okkar allra sem göngum um planið.
Þau sem eiga erfitt með gang og þurfa að fá að leggja bíl sínum nálægt húsinu hvetjum við til að nýta stæðin beint fyrir framan og sem næst húsi og þau sem eiga auðveldara með gang að leggja örlítið lengra frá.
Takk fyrir skilninginn og samvinnuna.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






