Núvitundarnámskeið að hefjast í Ljósinu

Núvitund snýst um að vita hvað er að gerast innra með okkur á meðan það er að gerast án þess að grípa inn í það. Rannsóknir benda í vaxandi mæli til þess að núvitund ýti undir andlega og líkamlega vellíðan og geri okkur betur í stakk búin til að takast á við áskoranir lífsins. Þessi nálgun hefur verið notuð um árabil í löndum í kringum okkur með góðum árangri.

Í Ljósinu hefst á næstunni nýtt núvitundarnámskeið þar sem þátttakendur þjálfa upp eigin færni í núvitund og finna betur fyrir þeirri ró og meðvitund sem fylgir því að vera í núinu.

Fyrirkomulag: Námskeiðið samanstendur af fræðslu og æfingum í núvitund, auk æfinga í innri og ytri samkennd og góðvild. Æfingarnar felast meðal annars í stuttum sitjandi hugleiðslum, líkamsskönnun og líkams- og gönguhugleiðslum, og gefst einnig rými til að deila eigin upplifun — stundum í hópnum, stundum í minni hópum — fyrir þá sem það kjósa. Þátttakendur fá verkefni til að æfa sig heima á milli tíma, auk leiðarvísis og hljóðupptaka með núvitundaræfingum til að styðja enn frekar við æfinguna.

Næsta námskeið:

  • Hefst 7. október
  • Miðvikudagar kl. 13:30-15:30, 5 skipti
  • Umsjón: Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, sálfræðingur og núvitundar- og samkenndarkennari

Skráning og nánari upplýsingar fara fram í síma 561-3770 sem og á vefnum: 

Núvitundarnámskeið – Ljósið

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.