Kæru vinir,
Ljósið er á faraldsfæti! Við erum að flytja starfsemi okkar í nýtt og glæsilegt húsnæði að Gylfaflöt 5. Vegna flutninganna verður lokað í Ljósinu dagana 21.–30. september.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið hörðum höndum að því að sníða nýja húsnæðið að starfseminni og tryggja að umhverfið sé í senn hlýlegt, faglegt og aðgengilegt fyrir alla.
Við hlökkum mikið til að opna dyrnar á nýjum stað fimmtudaginn 1. október og taka á móti ykkur öllum í Gylfaflötinni.
Ef brýn erindi vakna á meðan á lokun stendur er hægt að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst á mottaka@ljosid.is eða hringja í síma 5613770.
Námskeiðin sem verða meðan á lokun stendur eru:
- Fræðsla í streymi – miðvikudagar kl. 14.00
- Jóga nidra námskeið í streymi sem hefst 25. september
- Náttúrunæring sem hefst 29. september
- Jafningjahópur langvinnt mein hittast við Þjóðleikhúsið 30. september. Þeir sem eru skráðir hafa fengið tölvupóst með nánari upplýsingum.
Öll Grunnfræðsla tekur hlé á meðan flutningum stendur:
- Karlafræðsla: Hlé 22. og 29. september (seinni tveir tímar námskeiðsins verða 6. og 13. október kl. 14:00 í Gylfaflötinni)þ
- Grunnfræðsla konur 65+: Hlé 21. og 28. september. Næst 5. október kl. 13:30 í Gylfaflöt
- Grunnfræðsla konur 46-64 ára: Hlé 24. september. Næst 1. október kl. 10:00 í Gylfaflöt
- Grunnfræðsla konur 20-45 ára: Hefst 5. október kl. 10:00 í Gylfaflöt
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






