Íris Frímannsdóttir

5
okt
2026

Lokað í Ljósinu föstudaginn 9. október

Lokað verður í Ljósinu næstkomandi föstudag 9. október vegna hópeflis og árshátíðar starfsfólks. Við opnum aftur með bros á vör mánudaginn 12. október. Bestu kveðjur, Starfsfólk Ljóssins

25
sep
2026

Brátt opnum við dyrnar á nýja heimili Ljóssins

Við höfum verið á fullu að pakka niður, flytja dót og koma okkur fyrir í nýja heimili Ljóssins á Gylfaflöt 5. Það er góð stemning meðal starfsfólks og allir orðnir spenntir að geta opnað húsið fimmtudaginn 1. október. Við söknum þess að hafa ykkur yndislega fólk í húsinu með okkur, en það styttist óðum í að húsið fyllist af lífi

Lesa meira

16
sep
2026

Hansamót 2026 – Golfmót til minningar um Hans A. Hjartarson

Golfmót til minningar um Hans A. Hjartarson safnaði 570.000 krónum fyrir Ljósið! Í byrjun september var árlegt golfmót haldið til minningar um Hans A. Hjartarson, sem lést í júlí 2020. Hans var mikill íþróttaáhugamaður og hafði sérstaklega gaman af golfi. Fjölskylda hans og vinir ákváðu því að halda árlegt golfmót honum til heiðurs. Í ár var mótið haldið í sjöunda

Lesa meira

15
sep
2026

Ljósið flytur í Gylfaflöt 5 – Lokað vegna flutninga 21.–30. september

Kæru vinir, Ljósið er á faraldsfæti! Við erum að flytja starfsemi okkar í nýtt og glæsilegt húsnæði að Gylfaflöt 5. Vegna flutninganna verður lokað í Ljósinu dagana 21.–30. september. Undanfarnar vikur hefur verið unnið hörðum höndum að því að sníða nýja húsnæðið að starfseminni og tryggja að umhverfið sé í senn hlýlegt, faglegt og aðgengilegt fyrir alla. Við hlökkum mikið

Lesa meira

14
sep
2026

Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri – Hittingur 6. október

Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri mun hittast næst 6. október kl. 13:00 við Kjarvalsstaði. Við fáum leiðsögn á sýninguna Smáborg, háborg  – Reykjavík í mynd og fáum okkur kaffi á eftir á Klömbrum bistró. Listasafnið býður okkur á viðburðinn en vinsamlegast skráið þátttöku í móttöku Ljóssins (sími: 561-3770).

3
sep
2026

Má bjóða þér slakandi dvöl á Sólheimum 12.-16. október?

Bergmál líknarfélag hefur ákveðið að bjóða þjónustuþegum Ljóssins að koma aftur í slakandi dvöl á Sólheimum, Grímsnesi, vikuna 12.-16. október. Þau voru svo ánægð með hópinn sem kom í ágúst að þau vilja endilega endurtaka leikinn fyrir fleiri. Gist er í tveggja manna herbergjum (12 herbergi eru í boði) og er dvölin (gisting og matur) þjónustuþegum að kostnaðarlausu. Þetta er

Lesa meira

24
ágú
2026

Reykjavíkurmaraþon (MYNDIR)

Kæru vinir, Við erum í skýjunum eftir alveg frábæra helgi, bæði Fit&Run-hátíðina og maraþondaginn sjálfan! Það var afar dýrmætt að fá að hitta ykkur öll sem völduð að hlaupa fyrir Ljósið. Þvílíkur kærleikur, stuðningur og gleði sem hefur einkennt síðustu daga! Við erum hjartanlega þakklát fyrir hvert eitt ykkar og þann ómetanlega stuðning sem þið sýnið starfsemi Ljóssins. Maraþondagurinn hófst

Lesa meira

13
ágú
2026

Tiltek í leirherberginu fyrir flutninga

UPPFÆRT 20.08.2026: Við höfum bætt við tveimur auka tímum, fimmtudaginn 27. ágúst og miðvikudaginn 2. september kl. 9:00-12:00. Vinsamlegast skráið ykkur í móttöku Ljóssins.   Miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9:00-12:00 verður hægt að koma niður í leirherbergi til þess að glerja óglerjaða muni. Endilega skráði ykkur í móttökunni ef þið vitið af óglerjuðum leirmunum sem þið eigið frá því í

Lesa meira

30
júl
2026

Hvernig skrái ég mig sem hlaupara fyrir Ljósið í maraþoninu? – Leiðbeiningar

Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um hvernig hægt sé að skrá sig sem hlaupara fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu þann 22. ágúst. Hér fyrir neðan eru einfaldar leiðbeiningar: Skref 1: Farðu inn á hlaupastyrkur.is Skref 2: Veldu „Taka þátt“ Skref 3: Veldu ,,Mínar síður“ og skráir þig inn með tölvupóstinum þínum. Skref 4: Ýttu á rauða hnappinn „Skrá mig“ sem er efst í

Lesa meira

29
júl
2026

Vissir þú að það er hægt að panta viðtal hjá næringarfræðingi í Ljósinu?

Í Ljósinu er boðið upp á næringarráðgjöf hjá Lilju Guðmundsdóttur næringarfræðingi. Næringarráðgjöf í endurhæfingu Krabbamein og meðferð þess geta haft mikil áhrif á matarlyst, meltingu, orku og líkamlega getu. Einstaklingsmiðaðar áherslur í næringu geta skipt sköpum fyrir bæði líðan og bataferli en það getur verið erfitt að vita hvar á að byrja. Mögulegir ávinningar Markmiðið með næringarráðgjöfinni er styðja við

Lesa meira