Fréttir

27
maí
2022

Fjölskyldugangan miðvikudaginn 1. júní – Mætum tímanlega

Það styttist í Fjölskyldugöngu Ljóssins og við erum orðin mjög spennt!   Við hvetjum ykkur til að mæta örlítið fyrr og taka þátt í upphitun sem þjálfarateymið leiðir áður en við göngum af stað. Ef veður leyfir þá ætlar Arna jógakennari að bjóða uppá slökun og jafnvel Gong fyrir þá sem treysta sér ekki að ganga og svo aftur þegar

Lesa meira

25
maí
2022

Verkís afhenti Ljósinu rausnarlegan styrk

Í tilefni 90 ára afmæli síns afhenti Verkís Ljósinu styrk uppá 3.000.000 króna en styrkurinn er hluti af markmiði fyrirtækisins að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og taka þátt í að byggja upp samfélög bæði hér á landi og erlendis. Einnig styrkti Verkís Rauða krossinn og Krabbameinsfélagið – Styrkleikana af sama tilefni. Virkilega gott framtak, sem sannarlega skilar sér í

Lesa meira

25
maí
2022

Stjörnustrákar styðja Ljósið

Í gær fengum frábæra heimsókn frá Gabríel og Tómasi sem eru flottir strákar úr Garðabæ. Fyrir skömmu síðan greindist góður vinur, skólafélagi og Stjörnustrákur með krabbamein og fundu þeir löngun til að bregðast við og láta gott af sér leiða. Úr varð að þeir ákváðu að ganga í hús og óska eftir framlögum svo að þeir gætu styrkt fólk með

Lesa meira

25
maí
2022

Vilt þú gefa okkur innsýn í þitt ferli?

Vilt þú aðstoða Sidekick við að hanna stafrænt meðferðarúrræði fyrir krabbameinsgreinda? Sidekick Health er að undirbúa hönnun á nýju stafrænu meðferðarúrræði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Til að gera það sem best úr garði og geta stutt sem best við krabbameinsgreinda langar okkur að fá sjálfboðaliða til að spjalla við okkur. Um er að ræða einstaklingsviðtöl við starfsmann

Lesa meira

24
maí
2022

Fjölskylduganga Ljóssins miðvikudaginn 1. júní – Lokað í Ljósinu

Loksins er komið að árlegu fjölskyldugöngu Ljóssins en hún mun fara fram miðvikudaginn 1. júní. Það kemur kannski ekki á óvart en gengið verður á uppáhaldsfjallið okkar, Esjuna! Lagt verður af stað í fjallið kl.11:00 frá grunnbúðum Ljóssins við Esjurætur þar sem hver gengur á sínum hraða. Athugið að einungis verður gengið upp að brú en ekki upp að Steini. Starfsfólk

Lesa meira

18
maí
2022

Kiwanisklúbburinn Eldey færir Ljósinu rausnarlegan styrk

Kiwanisklúbburinn Eldey hélt á dögunum upp á 50 ára afmæli sitt. Af því tilefni færði klúbburinn Ljósinu rausnarlegan styrk. Brynjólfur Eyjólfsson rekstrar- og fjármálastjóri Ljóssins veitti styrknum viðtöku við hátíðlega athöfn. Styrkurinn nýtist vel í ört stækkandi starfsem Ljóssins og erum við þeim afskaplega þakklát.

18
maí
2022

Óður til vináttu – Styrktartónleikar í kvöld kl:20.00

Óður til vináttuStyrktartónleikar fyrir Ljósið fara fram í kvöld í Seltjarnarneskirkju klukkan 20:00. Það er Gunnar Már Jóhannsson, bassbaritón, sem stendur fyrir tónleikunum en með honum verða ekki minni nöfn en Karlakórinn Fóstbræður, Fósturvísarnir, Egill Árni Pálsson, tenór, Davíð Ingi Ragnarsson, bassi og Ragnar Ingi Sigurðarson, tenór. Við vonum að velgjörðarfólk Ljóssins, Ljósavinir og allir hinir fjölmenni á þennan fallega

Lesa meira

18
maí
2022

Hlaupahópur hittist miðvikudaginn 25. maí

Eftir virkilega velheppnaða pop-up hlaupaæfingu í síðustu viku var ákveðið að bæta við annarri æfingu miðvikudaginn 25. maí. Hópurinn hittist klukkan 16:00 við æfingarsal Ljóssins og tekur æfingin um klukkustund. Við hvetjum alla, og sér í lagi þá sem ætla að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fyrir Ljóssins hönd í ágúst, að reima á sig skóna. Það er Guðrún Erla,

Lesa meira

18
maí
2022

Stafgöngukennsla samhliða gönguhóp Ljóssins

Heil og sæl kæru vinir, Næstu vikurnar ætlum við að brjóta aðeins upp formið á gönguhópnum og bjóða einnig upp á stafgöngu fyrir áhugasama. Stafaganga er ganga með sérhannaða stafi og er áhrifarík leið til heilsuræktar sem hentar fólki á öllum aldri, óháð kyni eða líkamlegu ástandi. Stafaganga á rætur sínar að rekja til Finnlands en þegar snjó tók upp

Lesa meira

9
maí
2022

Kiwanisklúbburinn Hekla kom færandi hendi

Við fengum góða heimsókn á dögunum þegar Kiwanisklúbburinn Hekla kom færandi hendi. Þeir færðu Ljósinu rausnarlegan styrk sem nýtist vel í ört vaxandi starfsemi Ljóssins. Færum við þessum heiðursmönnum bestu þakkir fyrir heimsóknina og styrkinn góða.