Fréttir

11
apr
2016

Styktarkvöld Ljóssins

Styrktarkvöldið verður haldið þann 12.apríl á Café Rosenberg við Klapparstíg.  Hefst kl 21.00  Miðaverð: 2000 (að sjálfsögðu má leggja meira í málefnið) Ath - 20 ára aldurstakmark. Fram koma: - Elísabet Ormslev - Ari Eldjárn - Stefán Hilmarsson - Alda Dís - Jón Jónsson ATH - AÐEINS 150 MANNS KOMAST AÐ - FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR - ENGINN POSI ER
Lesa meira
11
apr
2016

Langar þig að styrkja þig til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ágúst ?

Við í Ljósinu ætlum að hjálpa þér til þess. Útihópur sem leggur áherslur á styrktaræfingar, skokk og hlaup fer af stað fimmtudaginn 28. apríl nk. kl 15:30 Við í Ljósinu yrðum afskaplega þakklát ef hópurinn myndi skrá sig inná hlaupastyrkur.is og hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoni þann 20. ágúst nk., hvort sem það eru Ljósberar, aðstandendur, starfsfólk eða aðrir.  

17
mar
2016

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2016

                                                              Yndislegt fyrir okkur öll sem stöndum að Ljósinu Verðlaunafé fyrir sjálf samfélagsverðlaunin er 1,2 milljónir króna.Tilnefningin var eftirfarandi: Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af

Lesa meira

14
mar
2016

Slökunarnámskeið með Lilju

Kennsla í slökun miðvikudagana 30. mars og 6 apríl 2016 kl. 10:30 -12:00. – SKRÁNING Í SÍMA 5613770 Fyrri tími: Kennd verður róandi öndun og einföld slökunartækni Síðari tími: Kennd verður sjónsköpun. Í lok hvors tíma er hópslökun sem byggir á aðferðum dáleiðslu. Markmiðið er að þátttakendur læri aðferðir (róandi öndun og slökun) til að hafa áhrif á líðan sína. Um

Lesa meira

10
mar
2016

Mottudagurinn 11. mars

Við sýnum samstöðu hér í Ljósinu og tökum þátt, endilega látið sjá ykkur – hver veit nema eitthvað gómsætt verði á borðum.  Hlökkum til að sjá ykkur. MOTTUDAGURINN 11. MARS Föstudaginn 11. mars 2016 hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr! Á Mottudeginum látum

Lesa meira

3
mar
2016

Formleg opnun á nýrri viðbyggingu

Erna Magnúsdóttir ásamt Þórði og Auðunn, sem eru upphafsmenn af söfnuninni fyrir Ljósið    Fimmtudaginn 25.febrúar sl komu Líknar-og styrktarsjóður Oddfellowreglunnar í Ljósið og var formleg afhending á viðbyggingu og breytingum á húsnæðinu okkar. (Fleiri myndir hér) Margir góðir gestir mættu á svæðið og þökkum við þeim innilega fyrir komuna. Það komu gjafmildir gestir og má þar nefna Guðmund Sigurjónsson

Lesa meira

11
feb
2016

Ljúffengur fyrirlestur í Ljósinu

Omnom í heimsókn með fyrirlestur. Mánudaginn 15. feb. kl. 14:05 Kjartan Gíslason einn af eigendum Omnomchocolate kemur og fræðir okkur um súkkulaðigerðina, en súkkulaðið hefur slegið í gegn hér á Íslandi sl. ár. Við verðum með sambland af fyrirlestri um vinnsluna og smakki á súkkulaði.  Namm namm…. Gott að vita hve margir hafa áhuga…skráning í síma 5613770

4
feb
2016

Viltu vera vinur Ljóssins ?

Ljósið stendur nú fyrir söfnun á Ljósavinum, þú gætir fengið símtal. Sem Ljósavinur greiðir þú ársgjald að upphæð 3.500, og styrkir starfsemi Ljóssins. Það er einnig hægt að skrá sig sem Ljósavin hér inná síðunni. Allir styrkir fara beint í endurhæfinguna og hjálpar þannig til við að efla lífsgæði krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra.

21
jan
2016

Stuðnings og fræðslunámskeið fyrir fólk með langvinnt krabbamein

Nýtt námskeið hefst 8.febrúar  Skráning og upplýsingar í síma 5613770 Aðalmarkmiðin með námskeiðinu eru að þátttakendur auki, jafnvægi sitt í daglegu lífi, starfsfærni, vellíðan og von. Á námskeiðinu gefst tækifæri til þess að hitta aðra í sömu sporum, fá fræðslu og stuðning við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, efla sjálfsmyndina, draga úr þreytu, auka jafnvægi í daglegri iðju, styrkja tilgang og

Lesa meira

21
jan
2016

Fræðslufundir fyrir karlmenn

Hefst 1.febrúar með kynningarfundi  kl.17.30 Nýtt námskeið hefst 8.febrúar    Einar Magnússon segir frá reynslu sinni af því að hafa greinst með krabbamein. Aðstandendur eru velkomnir með á kynningarfundinn. Skráning og upplýsingar í síma 5613770   Umsjónarmaður fyrir Ljósið er Matti Ósvald heilsufræðingur