Í ljósi aðstæðna höfum við ákveðið að fjölga göngum og kynnum nýtt fyrirkomulag á skráningu: Tvær göngur verða á dagskrá á hverjum degi inn í vorið. Í hverjum hópi verða 10 manns að hámarki. – Lengri ganga hefst klukkan 10:30 – Styttri ganga hefst klukkan 10:45. Gengið er frá bílaplani Ljósins Skráning og frekari upplýsingar má fá í móttöku Ljóssins í síma 561-3770.
Í samræmi við heimild heilbrigðisráðherra að fenginni tillögu Þórólfs sóttvarnarlæknis höfum við ákveðið að opna Ljósið í smáum skrefum frá og með 4. maí næstkomandi. Á meðan tveggja metra reglan er í gildi er húsið einungis opið þeim sem eiga bókaðan tíma hjá fagaðila. Í fyrstu verður boðið upp á eftirfarandi þjónustu: Einstaklingsviðtöl hjá iðjuþjálfum, sjúkraþjálfurum, sálfræðiráðgjafa, markþjálfa og fjölskyldumeðferðarfræðing
Fjarheilbrigðisþjónusta nú í boði í Ljósinu. Á undanförnum vikum hefur Ljósið innleitt nýja fjarheilbrigðisþjónustu í gegnum forritið Kara Connect. Kara Connect býður upp á sérhæfðan hugbúnað fyrir aðila sem fást við viðkvæmar persónuupplýsingar eins og til dæmis heilbrigðisstofnanir en forritið er vottað af landlækni og stenst kröfur persónuverndarlaga (GDPR). Fyrirkomulagið er einfalt en krabbameinsgreindir og aðstandendur þeirra óska eftir fjarfundi
Nú er allur heimurinn á hvolfi, kórónaveiran er allt í einu orðið undarlegt sameiningartákn allra þjóða þar sem öll tilvera okkar er lituð af þessum heimsfaraldri, ekkert er eins og það var og verður sennilega aldrei. Á þessum tímum upplifum við breytt lífsmynstur, óöryggi, kvíða og oft á tíðum einangrun. Mikið álag að greinast með sjúkdóm á þessum tíma. Að
eftir Margréti Örnu Öllum er nauðsynlegt að slaka á daglega. Ég tala nú ekki um á tímum hraða, streitu og stressi þar sem kröfurnar eru svo miklar að standa sig á öllum sviðum. Það þarf ekki langan tíma og 10 mínútur geta endurnært þig á sál og líkama. Slökun er tækni sem gerir þér kleift að róa hugann, slaka á
Elskulegu Ljósberar. Ljósið er 15 ára í ár. Frá stofnun höfum við upplifað ótrúlega miklar breytingar. Við byrjuðum með hugsjón um að stofna litla endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda þar sem fyrsti fundurinn var haldinn heima í stofunni minni með áhugasömu fólki sem vildi gera allt til að hjálpa til við að gera drauminn að veruleika. Í dag erum við með tvö
eftir Margréti Örnu Í gegnum huga okkar fara þúsundir hugsana á hverri sekúndu og við grípum einungis brotabrot af þeim. Sumar af þessum hugsunum festast í undirvitund og hafa áhrif á það hvernig við skilgreinum okkur, hvernig okkur líður og hvernig við bregðumst við. Það er oft talað um að við séum þrælar hugans, að það sé sem sagt hugurinn
eftir Sigrúnu Þóru Sveinsdóttur Á þessum tímum þar sem umhverfi flestra minnkar og viðvera eykst með eigin hugsunum getur verið auðvelt að detta í neikvæðar og erfiðar hugsanir. Nú reynir á að hafa jákvæð áhrif á það sem við höfum stjórn á, þ.e. hvaða viðhorf og hugsanir við höfum um aðstæður okkar í dag. Við erum ekki að tala um
eftir Berglindi Baldursdóttur Tónheilun er frekar nýtt fyrirbrigði hérlendis. Margar jógastöðvar bjóða nú upp á slíkt en um er að ræða nokkurs konar hljóðbylgjumeðferð sem á að ýta undir slökun og vellíðan. Tónarnir eru framkallaðir með því að „spila” á sérstakar skálar úr stáli eða kristal með þar til gerðu áhaldi. Stundum er gong einnig notað. Þessar skálar eru oft
Góðan og gleðilegan fimmtudag, Undanfarnar vikur höfum við verið að ræða við þjónustuþega í gegnum síma og tölvupóst. Margir hafa alloft óskað eftir vettvangi á Facebook þar sem þjónustuþegar Ljóssins geta spjallað saman. Við bjóðum því öllum sem eru í virkri endurhæfingu í Ljósinu velkomna í nýja spjallhópinn okkar sem má finna með því að smella hér. Markmið hópsins er