Það eru svo margar fallegar stundir sem eiga sér stað hjá okkur í Ljósinu. Eitt af því sem hlýjar okkar hjartarótum hvað mest er auðvitað þegar við vitum að þjónustan sem við bjóðum upp á hafi nýst fólki í gegnum sitt ferli. Fyrr í vikunni kom hún Hanna Dóra Haraldsdóttir til okkar með veglegan þakklætisvott og meðfylgjandi bréf. Styrkur til
Í samstarfi við Hugleik Dagsson bjóðum við til sölu boli með teikningu sem byggir á reynslusögu ungra karlmanna sem greinst hafa með krabbamein. Hönnun og sala bolann tengist vitundarvakningunni Annað en þú heldur sem ætlað er að vekja athygli ungra karlmanna sem greinast með krabbamein á endurhæfingunni í Ljósinu. Öll upphæðin rennur til Ljóssins. Smelltu hér til að kaupa sótsvartan
Það var mikil gleði þegar lið Ljóssins tryggði sér annað sætið í Síminn Cyclothon keppninni föstudaginn 25. júní síðastliðinn. Þáttaka Ljóssins undir heitinu Annað en þú heldur er ætlað að vekja unga karlmenn til umhugsunar um hvað endurhæfing inniheldur, hver ávinningurinn er og sýna fram á að endurhæfing er annað en þú heldur. Karlmenn á aldrinum 16-45 ára eru ólíklegri
„Maður upplifir svo mikla ást og kærleika frá starfsfólkinu í Ljósinu og langar að gefa eitthvað til baka þegar maður hef nýtt sér þá þjónustu sem þar er í boði. Ég hafði þegar ákveðið að hlaupa í maraþoninu en var ótrúlega glöð að fá að taka þátt í nýju herferðinni. Þessi hugmynd um þakklæti höfðaði beint til mín því ég
Við breytum taktinum inn í sumarið og bjóðum nú á mánudögum upp á sérstakan hitting fyrir fólk á aldrinum 16-45 ára sem greinst hefur með krabbamein. Fyrsti hittingur mánudaginn 21. júní kl 12:00 Þetta er góður vettvangur til að koma saman, hitta aðra jafningja, og jafnvel deila reynslu sinni og miðla góðum ráðum. Fagaðilar Ljóssins eru á svæðinu og því
Fremstu hjólagarpar Íslands hjóla fyrir hönd Ljóssins í Síminn Cyclothon Fremstu hjólagarpar Íslands taka þátt í Síminn Cyclothon 2021 fyrir hönd Ljóssins endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda. Markmið Ljóssins með þátttöku í Síminn Cyclothon 2021 er að varpa ljósi á endurhæfingu krabbameinsgreindra og þá staðreynd að ungir karlmenn eru líklegri en aðrir hópar til að sleppa endurhæfingu þegar þeir greinast með krabbamein.
Eliza Reid forsetafrú hrinti af stað ljósavinaherferð fullri af þakklæti í Ljósinu í dag. Herferðin ber yfirskriftina „Þinn stuðningur er okkar endurhæfing“ og leggur áherslu á þakklætið sem þjónustuþegar Ljóssins finna til þeirra sem styðja Ljósið, svokallaða Ljósavini. „Ljósavinir eru lykilþáttur í rekstri Ljóssins og við finnum fyrir svo ótrúlega miklu þakklæti til þeirra frá þeim einstaklingum og aðstandendum sem
Veðurguðirnir voru okkur hliðhollir og mæting góð þegar árlega fjölskylduganga Ljóssins fór fram á Esjunni í dag. Gleðin skein úr hverju andliti en leyfum myndunum tala sínu máli. Kærar þakkir til allra þeirra sem tóku þátt í deginum.
Við minnum alla á að á morgun miðvikudaginn 9. júní er lokað í Ljósinu vegna fjölskyldugöngu Ljóssins. Við hlökkum til að sjá sem flesta með okkur í fjallið en gengið verður af stað á Esjuna kl. 11 frá grunnbúðum Ljóssins við Esjurætur þar sem hver gengur á sínum hraða og eins langt og þeir treysta sér til. Í ár göngum
Í sumar bjóðum við nýgreindum upp á fræðslu, umræður og vandaða fyrirlestra ásamt stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda undir nafninu Spjall og styrking. Þeir fagaðilar sem flytja erindi hafa allir unnið með krabbameinsgreindum og hafa víðtæka reynslu og skilning á aðstæðum þátttakenda. Umsjón með fræðslunni er í höndum iðjuþjálfa, en aðrir sérfræðingar flytja einnig