Næstkomandi fimmtudag stendur Krabbameinsfélagið Framför fyrir fyrir málþingi um hlutverk stuðningsfélaga og áhrif batamenningar. Meðal fyrirlesara er Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, sem mun ræða um þverfaglega endurhæfingu – eflingu lífsgæða. Málþingið hefst klukkan 16:30 og fer fram í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 18. Hægt er að lesa alla dagskrá málþingsins hér.
Lokað verður í Ljósinu næstkomandi föstudag 3.nóvember vegna hópeflis og árshátíðar starfsfólks. Við opnum aftur með bros á vör mánudaginn 6.nóvember. Bestu kveðjur, Starfsfólk Ljóssins
Þann 8.nóvember kl 14:30 – 15:30 fáum við góða heimsókn í húsakynni Ljóssins. Ólöf K.Bjarnadóttir sérfræðingur í krabbameinslækningum heldur erindi um brjóstakrabbamein með áherslu á andhormónameðferðir. Fyrirlesturinn bæði fram í húsnæði Ljóssins og á ZOOM. Nauðsynlegt er að skrá sig á fyrilesturinn, rafræn skráning fer fram hér
Kara Jóhannsdóttir var með taugaskemmdir í höndunum eftir lyfjameðferð þegar hún skráði sig í námskeið í fluguhnýtingum í Ljósinu. Hún segir handverkið vera góða endurhæfingu. Vinnur á taugaskemmdum með fínhreyfingum í flughnýtingum „Þegar ég skráði mig á námskeið í fluguhnýtingum var ég að kljást við doða, tilfinningaleysi og verki í fingrum“ segir Kara okkur frá þegar við ræðum við hana
Kæru vinir, Eins og flestir vita hefur verið boðað til Kvennaverkfalls næstkomandi þriðjudag og munu konur og kvár í Ljósinu leggja niður störf þann dag. Allir karlmenn sem starfa í Ljósinu munu þó taka vel á móti þeim þjónustuþegum sem koma í hús en eins og gefur að skilja mun verða umtalsvert rask á dagskrá Ljóssins vegna verkfallsins. Eftirfarandi dagskrárliðir
Ljósinu hefur borist liðsstyrkur frá öflugum samstarfsaðila í undirbúningi og framkvæmd Ljósafossins í ár en að þessu sinni ætlar Sjóvá að heita 1000 krónum á hvern þann sem tekur þátt í göngunni og skráir þátttöku í viðburðinn á Strava. „Sjóvá tekur þátt í þessum viðburði vegna þess að okkur þykir mikilvægt að minna á að vonin er mikilvægt vopn í
Húsakynni Ljóssins fengu örlítið annað hlutverk síðdegis á mánudag þegar Áslaug Arna, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra bauð í hús til okkar fulltrúum 11 sprotafyrirtækja sem hljóta styrki úr Fléttunni þetta árið. Fléttan eru styrkir sem veittir eru til nýsköpunarfyrirtækja sem skapað hafa áhugaverðar lausnir til að bæta þjónustu við sjúklinga, stytta biðlista og auka skilvirkni kerfisins almennt. Tólfti sprotinn var
Á dögunum tóku fulltrúar Ljóssins á móti viðurkenningu fyrir að hafa safnað mest allra góðgerðafélaga í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fór í ágúst. Alls söfnuðust tæpar 20 mílljónir sem er algjörlega stórfenglegur árangur. Við í Ljósinu erum í skýjunum og full þakklætis öllum þeim sem lögðu verkefninu lið, þessi viðurkenning er til ykkar allra. Hjartans þakkir! Við sendum okkar bestu hamingjuóskir
Fimmtudaginn 26.október kl.13:30 verður fræðsla frá þjálfurum Ljóssins ásamt kynningu á stuðningsvörum frá Eirberg. Er fræðslan hugsuð fyrir konur sem hafa undirgengist aðgerð á brjósti eða eru á leið í aðgerð. Skráning í móttöku Ljóssins
Kæru vinir, Því miður komu upp tæknilegir örðuleikar hjá okkur og ekki tókst að senda út link á alla þáttakendur námskeiðsins Samtalið heim sem verður í dag klukkan: 16:30 Því setjum við slóðina hér fyrir þá sem vilja taka þátt á ZOOM. Þeir sem vilja koma í hús eru velkomnir í Ljósið kl. 16:30. Með kærri kveðju, Starfsfólk Ljóssins