Einlæg frásögn ungrar konu sem fékk krabbamein. Lífsreynslusaga á mannamáli. Höfundur er Dóróthea Jónsdóttir Í bókinni er rakin saga Dórótheu þar sem grunur vaknar um að ekki sé allt í lagi, greiningarferlið, aðgerðin, samskipti við fólkið í kringum hana og flækjur sem geta skapast. Þetta á erindi til þeirra sem hafa sjálfir greinst, eru aðstandendur eða áhugasamir um sjúkdómsgreiningu sem
Falleg hugsun, pakki á pakka…kostar aðeins 500 kr og allt rennur til Ljóssins…Arca Design styrkir Ljósið í ár með sölu á þessum fallegu englum ,endilega komið við hjá Arcadesign Iceland í Grímsbæ, flott á jólapakkana og þið styrkið krabbameinsgreinda í leiðinni.
Það kom hingað góður maður sem vill styrkja Ljósið okkar og gaf okkur þessi fallegu orkuarmbönd. Við fáum allt söluandvirði armbandanna af þeim sem seljast frá Ljósinu eða 2500 kr. Þau eru svo líka seld í apótekum og heilsubúðum og þá fáum við 1000 kr af hverju stykki. Smelltu hér til að lesa meira um orkuarmböndin Okkur langar til að
Í tilefni af bleika deginum föstudaginn 12 okt nk , sem minnir okkur á baráttuna við krabbamein þá ætlum við að klæðast bleiku eða vera með eitthvað bleikt. Bjóðum upp á bleika tertu með kaffinu, komdu og vertu með okkur á bleika deginum og gerum daginn eftirminnilegan.
Aðstandendur krabbameinsgreindra (20 ára og eldri) Hefst: miðvikudaginn 6. febrúar . kl: 19:30-21:30, 7 skipti. Námskeiðið sem byggist á umræðum og fræðslu þar sem aðstandendur fá tækifæri til að tjá sig og deila reynslu með öðrum í sömu aðstæðum. Umsjón: Magnea B Jónsdóttir sálfræðingur , Svandís Íris Hálfdánardóttir hjúkrunarfræðingur og Rósa Krisjánsdóttir djákni. HÉR er hægt að lesa nánar um
Vekjum athygli á að í kvöld fimmtudaginn 13. sept kl. 20:00 verður haldinn kynningarfundur í Ljósinu fyrir ungt fólk sem hefur fengið krabbamein. Undanfarna tvo vetur hefur hópur á aldrinum 18-29 ára hist annað hvert fimmtudagskvöld. Þau hafa sjálf sett saman skemmtilega dagskrá. Umsjónarmaður hópsins í fyrra var Gunnar Þór Andrésson íþróttafræðingur, en hópurinn er samstarfsverkefni, Ljóssins, Krafts og Skb.
Námskeið fyrir börn og ungmenni, 6-13 ára og ungmenni 14-18 skipt eftir aldri. Námskeiðin hefjast fimmtudaginn 7.febrúar – skráning er hafin í Ljósinu í síma 5613770 Markmiðið er að styrkja börn og ungmenni sem eiga foreldri, systkini, ömmu, afa eða annan aðstandenda sem hefur greinst með krabbamein. Námskeiðið stuðlar að jákvæðri uppbyggingu fyrir börnin/ ungmennin og mikið er unnið með
Kynningarfundur á fræðslu haustsins auk fyrirlestra verður 4.febrúar. kl: 17.30 Markmið með fundunum er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu, hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum. Í hverri viku er nýr gestafyrirlesari Nánir aðstandendur eru velkomnir á kynningarfundinn Sjá nánar um fundina og dagskrá hér
Myndlistin er að hefjast aftur eftir jólafrí, nú höfum við fengið til liðs við okkur nýjan myndlistarkennara. Hún heitir Soffía Sæmundsdóttir , hún er myndlistarmenntuð frá Myndlista-og handíðaskóli Íslands, BFA , Mills College, Oakland, CA, MFA og er með kennsluréttindi frá LHÍ Hún mun bæði kenna nýliðum og lengra komnum. Myndlistin er á föstudögum kl: 13.00 – 15.30 – nýtt
Elskulegu vinir Ljóssins…innilegar þakkir til ykkar allra sem hlupu fyrir okkur á laugardaginn. Stemningin var stórkostleg og að ógleymdu okkar frábæra klappliði Ljóssins, það var það flottasta…. þúsund þakkir til ykkar allra.