Fréttir

21
jún
2010

Ljósið í sumar

Ljósið mun halda úti dagskrá í mest allt sumar ( sjá nýja sumardagskrá). Það er hægt að koma í viðtöl, gönguhópa, handverk, slökun, hádegismat og kaffispjall. Ljósið verður þó lokað frá og með 26. júlí til 6. ágúst. Opnum aftur mánudaginn 9. ágúst kl: 8.30. Hægt verður að hafa samband í síma 5613770 Vonum að þið eigið notalegt sumar.

18
jún
2010

Sumargrill í Nauthólsvikinni

  Ljósið og Kraftur, félag ungra krabbameinsgreindra taka nú höndum saman í ár og halda sumargrill. Það verður miðvikudaginn 30 júní kl. 17:00 í Nauthólsvíkinni. Allir velkomnir, grill og góðgæti ásamt skemmtiatriðum. sjá auglýsingu, opnast sem pdf Hlökkum til að sjá ykkur öll.

8
jún
2010

Fræðsla um, pH lífsstílinn,hráfæði smökkun, og uppskriftir.

        Innifalið á þessu námskeiði; Fræðsla um, pH lífsstílinn og hráfæði smökkun, og uppskriftir. Föstudagur 11. júní kl 10-12 Staður : Ljósið  Langholtsvegi 43  Edda Magnúsdóttir,  matvælafræðingur   Katrín E Kjartansdóttir, heildrænn heilsuráðgjafi       Ph stilling er lífsstíll, ekki kúr   Allir velkomnir – aðgangur ókeypis

31
maí
2010

Dagur Ljóssins

  Þakkir til allra sem tóku þátt í Ljósadeginum okkar. Föstudagurinn 28 maí rann upp bjartur og sólríkur. Þorsteinn Jakobsson hóf gönguna á 10 tinda kl. 5:00 um morguninn.  Hann hafði sett markið á 13 klukkutíma en lauk göngunni á 12 og ½ tíma. Á meðan Steini gékk á fjöllin þá var margt um manninn í húsakynnum Ljóssins að Langholtsvegi

Lesa meira

4
maí
2010

Heilbrigð skynsemi – heilsunnar vegna

Spennandi og fræðandi fyrirlestur í Ljósinu Langholtsvegi 43, fimmtudaginn 6 maí kl. 13:30 Matti Ósvald er menntaður heilsufræðingur og hefur mikinn áhuga á öllu er viðkemur heilsu og lífsháttum fólks. Ekki missa af þessum frábæra fyrirlesara. Allir velkomnir – aðgangur ókeypis

26
apr
2010

Ungliðahópur Ljóssins,Krafts og SKB

  Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB), Ljósið endurhæfingar og stuðningsmiðstöð og Kraftur hafa tekið höndum saman um að halda úti metnaðarfullri dagskrá fyrir ungliða á aldrinum 18 til 29 ára frá og með næsta hausti. Vel heppnaður kynningarfundur var haldinn  sl. miðvikudag þar sem um 20 ungmenni mættu. Félögin kynntu starfsemi sína og fengu um leið hugmyndir frá ungliðunum í púkkið

Lesa meira

26
apr
2010

Slæðuhnýtingar

Lærðu að binda slæður á flottan hátt , Aníta Berglind Einarsdóttir veður í Ljósinu föstudaginn 30. apríl kl:13-14 

20
apr
2010

Ungliðahópur Ljóssins og Krafts

6
apr
2010

Aðalfundur Ljóssins 2010

    Aðalfundur Ljóssins  verður haldinn 19 apríl nk. kl. 16:30 að Langholtsvegi 43, 104 Rvk. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Hvetjum alla félagsmenn til að mæta Í tilefni af 5 ára afmæli Ljóssins verður kaffi og terta. Með kveðju Stjórn Ljóssins

29
mar
2010

Ljósið lokað yfir páskana fimmtudag til mánudags

Gleðilega páska Vonum að þið eigið ljúfa og góða páskahelgi.  Við opnum aftur þriðjudaginn 26 apríl. Það er hægt að panta minningarkort á heimasíðunni og verða þau send fyrsta vinnudag eftir páska.