Kæru vinir, Í næstu viku, dagana 15. – 17.desember ætlum við að vera á jólalegu nótunum í Ljósinu. Við hvetjum alla bæði starfsfólk og þá sem heimsækja Ljósið að koma jólaleg í hús. Þetta þarf ekki að vera flókið, það er ýmislegt hægt að gera einfalt en gott í þeim málum. Jólasokkar, eyrnalokkar, jólapeysur, húfur, hægt er að hengja á
Nú fer jólahátíðin að ganga í garð. Lokað verður í Ljósinu frá og með 23. desember og opnar aftur þann 5. janúar 2022. Starfsfólk Ljóssins hvetur ykkur öll til þess að vera dugleg yfir hátíðarnar, hugið að hreyfingu hvort heldur sem er utandyra eða innan. Einnig er tilvalið að passa upp á næringuna og þá einnig að næra hugann til
Þeir Einar Hilmarsson og Gunnar Júlíusson hjá Lionsklúbb Laugardals komu færandi hendi í Ljósið á dögunum. Ljósinu var færður veglegur styrkur sem þeir ánafna meðal annars í gripstyrktarmæli, ásamt því að bæta tækjakost í tækjasalnum. Við sendum hjartans þakkir fyrir góða heimsókn og styrkinn góða.
Árlegt tímarit Ljóssins er nú komið út í glæsilegri stafrænni útgáfu. Eins og alltaf eru efnistökin fjölbreytt og spanna allt frá faglegum umfjöllunum starfsfólks yfir í áhrifaríkar frásagnir þjónustuþega. Blaðið kemur út í stafrænni útgáfu sem gefur okkur tækifæri til að færa ykkur persónulegri frásagnir í formi hlaðvarpa, gæða umfjöllunina meira lífi með auknu myndefni og gera hinni einstöku grasrót
Við minnum á strákahittinginn á mánudaginn næsta, þann 29. nóvember kl. 11.00. Mark og Stefán íþróttafræðingar halda utan um æfinguna í tækjasal klukkan 11.00. Að æfingu lokinni verður snæddur hádegisverður þar sem Helga Jóna, iðjuþjálfi og fjölskyldufræðingur, stýrir umræðum og fræðslu. Hún fer yfir samskipti krabbameinsgreindra við fjölskyldur, börn og vini. Ert þú krabbameinsgreindur karlmaður á aldrinum 18-45 ára? Kíktu
Fimmtudaginn 2. desember næstkomandi kl. 12.00 verður haldin vinnustofa á Zoom þar sem Sigrún Þóra Sveinsdóttir kynnir veflausnina Proency. Proency er andleg heilsulausn með það að markmiði að gefa notendum tækifæri á að fylgjast reglulega með andlegri heilsu á sjónrænan hátt á sínu persónulega stjórnborði. Á vinnustofunni er farið yfir með einföldum hætti hvernig forritið nýtist best, og kynnt fyrir
Kæru vinir, Það eru truflanir á vefþjóni Ljóssins sem stendur. Það er þó verið að vinna hörðum höndum að því að koma honum í lag. Tölvupóstur er því miður ekki að berast, ef þið þurfið nauðsynlega að ná í okkur þá bendum við á móttöku Ljóssins í síma: 561-3770 Kær kveðja Starfsfólk Ljóssins
Skemmtilegt og skapandi námskeið í kransagerð fer fram í Ljósinu 24. nóvember næstkomandi. Unnið verður með bæði hurðarkansa sem og aðventukransa. Við gefum sköpunargáfunni lausan tauminn, ýmis efniviður verður á staðnum, má þar nefna t.d. flauel, greni og köngla ásamt fleiru. Nú er um að gera að koma sér í smá jólagír og eiga notalega stund í kransagerðinni og jólaundirbúningnum.
Mánudaginn 15. nóvember kl: 11.00 verður strákastund í Ljósinu. Við byrjum á að hittast í tækjasalnum og taka lyftingaæfingu undir leiðsögn þjálfara. Að æfingu lokinni verður sameiginlegur hádegisverður þar sem Haukur Guðmundsson kemur og hittir hópinn í fræðslu, ráðgjöf og spjall Skráning fer fram í móttöku Ljóssins í síma: 561-3770 eða í tölvupósti: mottaka@ljosid.is Bestu kveðjur, Þjálfarar Ljóssins
Kæru vinir, Miðvikudaginn næstkomandi 10. nóvember verður kaldavatnslaust í Ljósinu frá kl: 9.30 – 13.30 Eldhúsið verður lokað, og því enginn hádegisverður Salerni verða einungis opin í byggingu líkamlegrar endurhæfingar Með fyrirfram þökk um góða samvinnu, Bestu kveðjur Starfsfólk Ljóssins