heida

25
júl
2021

Sóttvarnir í Ljósinu

Kæru vinir sem sækið endurhæfingu og stuðning í Ljósinu, Í samræmi við hertar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda sem gilda frá og með 25. júlí til og  með 13. ágúst þá höfum við í Ljósinu ákveðið að eftirfarandi reglur gilda hjá okkur: Fjarlægðarmörk er 1 metri milli fólks Grímuskylda er í Ljósinu en er þó metið í hverju afmörkuðu rými útfrá aðstæðum og

Lesa meira

16
júl
2021

Miðfellshlaup til góðs, Ljósinu færður rausnarlegur styrkur.

Þau Arnfríður Jóhannsdóttir, Kolbrún Haraldsdóttir og Gunnar Gunnarsson lögðu leið sína á Miðfell þann 13.júlí síðastliðinn til að afhenda Ernu Magnúsdóttir forstöðukonu Ljóssins styrk vegna Miðfellshlaupsins. Miðfellshlaupið sem fór fram 29.maí sl. heppnaðist einstaklega vel, eru​ þau virkilega ánægð með góða þáttöku og stolt af þessu skemmtilega hlaupi. Hlaupið var ræst bæði frá Flúðum og bænum Miðfelli sem eru einmitt

Lesa meira

15
júl
2021

Árgangur ´64 úr Grunnskóla Akureyrar kom færandi hendi

Ljósinu barst á dögunum óvæntur styrkur uppá 150.000 kr. Það var hún Vilborg Karlsdóttir sem kom færandi hendi fyrir hönd árgangs´64 frá Grunnskólanum á Akureyri. Er gjöfin til minningar um Margréti Björnsdóttir. Við hjá Ljósinu erum virkilega þakklát fyrir þetta fallega framtak og styrk sem mun nýtast vel í starfsemi Ljóssins. Hjartans þakkir.  

8
júl
2021

Þrautseigja og innri styrkur hefst 19. júlí

Markmiðið með námskeiðinu er að leiðbeina þátttakendum í aðferðum til að efla sjálfan sig í andlegri þrautseigju (e. resilience) og að auka innri styrk með gagnreyndum (e. evidence based) aðferðum frá sálfræðinni. Rannsóknir hafa sýnt að hver sem er getur aukið andlega þrautseigju sína með því að læra ákveðna færni. Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til þess að læra

Lesa meira

31
maí
2021

Heiðarskóli sýndi Mamma Mía til styrktar Ljósinu

Þann 20.maí síðastliðinn buðu nemendur Heiðarskóla í Reykjanesbæ forstöðukonu Ljóssins á lokasýningu söngleiksins Mamma Mía. Nemendur hafa unnið hörðum höndum undanfarin misseri og uppskorið þessa glæsilegu sýningu. Er það venjan að enda ferlið á styrktarsýningu, en í ár var Ljósið fyrir valinu. Fyrrum nemandi skólans hefur nýtt sér þjónustu Ljóssins og þeim því málið skylt. Erna Magnúsdóttir fór til Keflavíkur

Lesa meira

19
maí
2021

Handprjónaðar húfur að gjöf til Ljóssins

Sunneva Dögg kom til okkar á dögunum færandi hendi. Hún afhenti okkur fyrir hönd tengdaömmu sinnar henni Elínu að gjöf fallegar handprjónaðar húfur. Erum við Elínu sem yfirleitt er kölluð Ella afskaplega þakklát fyrir þetta góða framtak og gjöf sem sannarlega kemur sér vel. Húfurnar eru nú til sölu í móttöku Ljóssins, það er úr mismunandi litum og mynstrum að

Lesa meira

24
mar
2021

Skert starfsemi í Ljósinu vegna Covid-19

Kæru vinir, Vegna nýjustu aðgerða ríkisstjórnarinnar viljum við sýna ábyrgð, og skerðum því starfsemina. Húsnæði Ljóssins verður opið með takmörkunum frá og með fimmtudeginum 25. mars og fram að páskum. Á það einnig við um tækjasal Ljóssins. Það verður opið fyrir viðtöl, nudd og snyrtingu. Þeir sem eiga bókuð viðtöl hjá fagaðila halda sínum tíma, og hafa val um að

Lesa meira

16
mar
2021

Listahopp og kaffihús fyrir konur 46 ára og eldri

Nú eru að fara af stað hinir frábæru jafningjahópar kvenna. Við höfum ákveðið að skipta hópnum frá 46 ára í tvennt. Annars vegar konur á aldrinum 46-59 ára og hinsvegar 60 ára og eldri, semsagt bæði hópar á besta aldri. Við stefnum á að hafa gleðina í forgrunni inn í vorið, en við ætlum byrja á skemmtilegu listahoppi í miðbæinn

Lesa meira

17
feb
2021

Brynja og Svanhvít færa Ljósinu vandaða saumavél

Í síðustu viku var Brynja Guðmundsdóttir hjá okkur í Ljósinu á fatasaumsnámskeiði. Eins og oft áður þá myndast fjörugar umræður á námskeiðunum. Umræðan snérist um nýjar saumavélar sem eru til sölu í Costco og tilvaldar fyrir byrjendur. Það var ekki að spyrja að því,  en Brynja stökk til og hafði samband við móður sína Svanhvíti Jónsdóttur og keyptu þær vél

Lesa meira