Hó hó hó, mættu jólalegur í Ljósið

Kæru vinir,

Í næstu viku, dagana 15. – 17.desember ætlum við að vera á jólalegu nótunum í Ljósinu. Við hvetjum alla bæði starfsfólk og þá sem heimsækja Ljósið að koma jólaleg í hús. Þetta þarf ekki að vera flókið, það er ýmislegt hægt að gera  einfalt en gott í þeim málum. Jólasokkar, eyrnalokkar, jólapeysur, húfur, hægt er að hengja á sig jólakúlu nú eða bara skella á sig rauðum og jólalegum varalit.

Starfsfólki Ljóssins hlakkar mikið til sjá ykkur öll jólaleg og í jólaskapi.

 

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.