Það var flottur hópur sem lagði á Esjuna í dag í fjölskyldugöngu Ljóssins. Gleðin skein úr hverju andliti og margir sigrar unnir í dag. Þjálfararnir okkar byrjuðu á skemmtilegri upphitun með dansi og söng. Innilegar þakkir fyrir daginn.
Reykajvíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram síðustu helgi og vonandi hefur það ekki farið fram hjá neinum hversu mikinn meðbyr Ljósið fékk í ár. Fyrir það erum við endalaust þakklát og glöð og sendum kærleikskveðjur út í andrúmsloftið til allra þeirra sem komu að hlaupinu með einum eða öðrum hætti. Frá því í vor hefur verið starfræktur hlaupa- og skokkhópur í Ljósinu
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að Reykjavíkurmaraþon fer fram á laugardaginn kemur, þann 18. ágúst. Rétt tæplega 300 manns eru nú skráðir sem hlauparar fyrir Ljósið. Það verður að segjast að við erum hrærð yfir þessum mikla stuðningi og velvilja og erum innilega þakklátt öllum þeim sem hlaupa, styrkja með áheitum, verða í klappliðinu eða styðja við
Frá og með 1. júlí fækkar dagskrárliðum hér í Ljósinu örlítið bæði vegna sumarleyfa starfsfólks og ljósbera. Ný dagskrá gildir því frá og með 1. júlí og út ágúst. Um leið og dagskrárliðum fækkar breytum við jafnframt opnunartíma Ljóssins örlítið og frá og með 1. júlí verður opið frá kl. 8:45 til 16. Einnig gefst öllum tækifæri til að æfa
Við minnum á Esjugönguna miðvikudaginn 27. júní þar sem allir eru velkomnir. Lagt verður af stað í fjallið kl. 11 og þeir sem ætla lengst byrja fyrstir og svo fara hinir af stað, allir á sínum hraða. Þeir sem ætla ekki að ganga geta tyllt sér í Esjustofu og spjallað saman og notið útsýnisins. Í Esjustofu verður tilboð á veitingum
Það er fátt betra en að vera við vatn eða árbakka, láta hugann reika, gleyma stund og stað og verða eitt með náttúrunni. Að bæta við þessa upplifun með því að vera með veiðistöng í hönd og fylgjast með því sem gerist á hinum endandum segja margir að sé ein sú besta núvitund sem til er. Þetta þekkja veiðimenn og
Sú hefð hefur skapast að lokaganga útivistarhóps Ljóssins er farin á Esjuna og er það gjarnan síðasta gangan fyrir sumarfrí útivistarhópsins og síðasta miðvikudagsgangan í júní. Í ár er það miðvikudagurinn 27. júni sem gengið verður á Esjuna. Að þessu sinni verður lagt af stað frá Esjustofu í fjallið kl. 11 fyrir þá sem ætla upp að steini en þeir
Í allan vetur hefur verið starfræktur afar öflugur fluguhnýtingarhópur hér hjá okkur í Ljósinu og margar afar skæðar veiðiflugur litið dagsins ljós. Það liggur því beinast við eftir góðan fluguhnýtingavetur að æfa aðeins köstin til að leggja flugurnar fram á sem girnilegastan máta fyrir fiskana. Á þriðjudaginn kemur, þann 13. júní ætlar flugukastgúrúinn Stefán Bjarni Hjaltested að koma og kenna
Nú þegar sumarið á að vera komið eða júní er allavega komin samkvæmt dagatalinu þá verða gjarnan smávægilegar breytingar á stundaskránni okkar hér í Ljósinu. Til að sjá nýuppfærða dagskrá, smelltu hér. En svo að við stiklum aðeins á stóru þá verður sú breyting á jóganu að einn tími verður á þriðjudögum og fimmtudögum í stað tveggja áður og verður
Næsta mánudag, þann 30. apríl verður kynning á skokkhóp Ljóssins. Það eru þær Camilla sjúkraþjálfari og Edda Dröfn Eggertsdóttir hlaupari sem munu halda utan um hópinn og hitta áhugasama og kynna næstu skref. Við hvetjum þá sem lengi hafa haft hug á að byrja að hlaupa og koma og vera með. Skokkhópurinn getur einnig verið góður undirbúningur fyrir Reykjavíkurmaraþon í