Þeir eru ófáir sem hugsa til Ljóssins og vilja styrkja það með einum eða öðrum hætti og nú nýverið barst Ljósinu slíkur styrkur. Styrkurinn er í formi geisladisks sem ber það hvetjandi heiti ,,Gríptu daginn“. Á diskinum eru níu frumsamin lög eftir Hróbjart Jónatansson, hæstaréttarlögmann. Geisladiskurinn er fáanlegur í Ljósinu og kostar 2500 kr. og rennur allur ágóði í starfsemi
Þriðjudaginn 25. september nk. verður Margrét Indriðadóttir sjúkraþjálfari Ljóssins með fyrirlestur um sogæðabjúg. Á fyrirlestrinum fer Margrét yfir helstu kvilla brjóstaaðgerða, uppbyggingu sogæðakerfisins og gefur fyrirbyggjandi ráðleggingar gegn sogæðabjúg á handlegg. Margrét hefur um langt skeið sinnt B-hópnum svokallaða hér í Ljósinu, en það er hópur fólks sem greinst hefur með krabbamein í brjósti. Hún hefur því víðtæka og mikla
Frá árinu 2014 hefur Heilsa hf. styrkt ákveðin verkefni í gegnum bætiefnalínu Gula miðans. Í ár nýtur Ljósið stuðningsins sem er veglegur og kunnum við Heilsu hf. okkar bestu þakkir fyrir að styrkja starfsemina með þessu frábæra framlagi. Bætiefnalína gula miðans, sem er í rauninni bleikur, samanstendur af þremur vörutegunum; Acidophilus plús, D3 vítamín og Múlti vít og renna 250
Lokað verður í Ljósinu miðvikudaginn 29. fimmtudaginn 30. og föstudaginn 31. ágúst vegna starfsdaga starfsfólks. Við opnum aftur mánudaginn 3. september með glóðvolgri, nýrri og spennandi stundaskrá. Við minnum á að hægt er að leita upplýsinga um starfsemin hér á heimasíðunni og jafnframt er hægt að panta minningarkort hér á síðunni. Hlökkum til að koma fílefld til starfa á ný
Reykajvíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram síðustu helgi og vonandi hefur það ekki farið fram hjá neinum hversu mikinn meðbyr Ljósið fékk í ár. Fyrir það erum við endalaust þakklát og glöð og sendum kærleikskveðjur út í andrúmsloftið til allra þeirra sem komu að hlaupinu með einum eða öðrum hætti. Frá því í vor hefur verið starfræktur hlaupa- og skokkhópur í Ljósinu
Það hefur sennilega ekki farið fram hjá neinum að Reykjavíkurmaraþon fer fram á laugardaginn kemur, þann 18. ágúst. Rétt tæplega 300 manns eru nú skráðir sem hlauparar fyrir Ljósið. Það verður að segjast að við erum hrærð yfir þessum mikla stuðningi og velvilja og erum innilega þakklátt öllum þeim sem hlaupa, styrkja með áheitum, verða í klappliðinu eða styðja við
Ljósið auglýsir eftir starfsfólki í stöður; sjúkraþjálfara, íþróttafræðings og sálfræðings frá og með 1. september eða eftir samkomulagi. Sjúkraþjálfari: Starfið felur í sér viðtöl, fræðslu, mælingar og þjálfun sem er einstaklingsbundin auk hópþjálfunar. Íþróttafræðingur: Starfið felur í sér sérhæfða þjálfun í samráði við sjúkraþjálfara. Í Ljósinu er nýr tækjasalur auk þess sem við nýtum glæsilegt húsnæði í Hreyfingu heilsulind. Jafnframt
Frá og með 1. júlí fækkar dagskrárliðum hér í Ljósinu örlítið bæði vegna sumarleyfa starfsfólks og ljósbera. Ný dagskrá gildir því frá og með 1. júlí og út ágúst. Um leið og dagskrárliðum fækkar breytum við jafnframt opnunartíma Ljóssins örlítið og frá og með 1. júlí verður opið frá kl. 8:45 til 16. Einnig gefst öllum tækifæri til að æfa
Við minnum á Esjugönguna miðvikudaginn 27. júní þar sem allir eru velkomnir. Lagt verður af stað í fjallið kl. 11 og þeir sem ætla lengst byrja fyrstir og svo fara hinir af stað, allir á sínum hraða. Þeir sem ætla ekki að ganga geta tyllt sér í Esjustofu og spjallað saman og notið útsýnisins. Í Esjustofu verður tilboð á veitingum
Kæru vinir, Við skellum í lás kl. 14 á föstudaginn kemur og skundum heim eða eitthvert annað til að horfa á landsleik Íslands og Nígeríu sem hefst kl. 15 Áfram Ísland HÚH! Ljósið, alltaf í boltanum.