Árlegt tímarit Ljóssins er nú komið út í glæsilegri stafrænni útgáfu. Hér má nálgast blaðið Eins og alltaf eru efnistökin fjölbreytt og spanna allt frá faglegum umfjöllunum starfsfólks yfir í áhrifaríkar frásagnir þjónustuþega. Við leitumst við að hafa hlýja blæinn úr Ljósinu ríkjandi í blaðinu. Með stafrænni útgáfu gefst okkur tækifæri til að færa ykkur persónulegri frásagnir í formi hlaðvarpa, gæða umfjöllunina meira
Kæru vinir, Við viljum vekja athygli á aðventuhátíð vina okkar hjá Bergmáli sem fram fer í Háteigskirkju sunnudaginn 4.desember klukkan 15:00. Dagskráin verður á hátíðlegum nótum. Heilsun, Össur Stefánsson Samsöngur, ,,Í dag er glatt í döprum hjörtum” Jólaguðspjall, Guðmundur Þórhallson Drengjakór Þorfinns Karlsefnis, Hallveigar og Sæmundarbræðra syngur jólalög. Stjórnandi Guðbjörg R. Tryggvadótti Einsöngur, Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran, Ave María Kaldalóns
Miðvikudaginn 30. nóvember klukkan 14:00 mun Virpi Jokinen, fyrsti vottaði skipuleggjandinn (e. Professional Organizer) hér á landi, halda erindi í Ljósinu. Við erum sífellt að takast á við breyttar aðstæður sem hafa oft í för með sér ofgnótt af hlutum. Og stundum er ekki auðvelt að eiga við þetta allt, að minnsta kosti ekki ein og óstudd. Skipulagsleysi getur endurspeglast
Fulltrúi landsliðs kvenna í blaki heimsótti okkur á dögunum og færði fyrir hönd landsliðsins Ljósinu gjafir í minningu Mundínu Ásdísar. Mundína, eða Munda eins og hún var kölluð, lést úr krabbameini nýlega en hún skipaði stóran sess í hjarta liðsins. Munda vann mikið og óeigingjarnt starf fyrir Blaksamband Íslands og þeim hjartans mál að heiðra minningu hennar með þessu fallega
Þriðjudaginn 8.nóvember kl.13:45 verður haldin fræðsla um líkamlega endurhæfingu ásamt kynningu á stuðningsvörum. Er kynningin fyrir konur sem hafa undirgengist aðgerð á brjósti eða eru á leið í aðgerð á brjósti. Þjálfarar Ljóssins sjá um fræðsluna og Eirberg sér um kynninguna. Fræðslan og kynningin verður í húsnæði Ljóssins við Langholtsveg 43 Meðal þess sem fjallað verður um: • Gervibrjóst • Brjóstahaldara
Föstudaginn 28.október verður lokað í Ljósinu vegna starfsdags og árshátíðar starfsfólks. Ljósið opnar svo að venju mánudaginn 31.október kl.8:30.
Næsta námskeið hefst á morgun, þriðjudaginn 25.október. Námskeiðið er tvö skipti dagana 25.október og 1.nóvember klukkan 16:30-18:30 Á námskeiðinu gefst ungmennum kostur á að hitta annað ungt fólk sem er í sambærilegum sporum. Hópurinn fær fræðslu en gefst einnig kostur á að ræða reynslu sína og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm
Á dögunum tóku fulltrúar Ljóssins á móti viðurkenningu fyrir að hafa safnað mest allra góðgerðafélaga í Reykjavíkurmaraþoninu sem fram fór í ágúst. Alls söfnuðust rúmar 12 milljónir sem er alveg magnaður árangur. Við í Ljósinu erum í skýjunum og full þakklætis öllum þeim sem lögðu verkefninu lið, þessi viðurkenning er til ykkar allra. Hjartans þakkir! Bestu kveðjur, Starfsfólk Ljóssins
Á dögunum fengum við góða heimsókn í Ljósið, en fyrir skemmstu færði Lionsklúbburinn Fjörgyn Ljósinu tölvubúnað sem er þegar kominn í notkun og nýtist afar vel hjá þjálfurum Ljóssins. Nú var komið að formlegri afhendingu og fengum við þessa skemmtilegu, vösku félaga úr klúbbnum í kaffi, spjall og kynntum við þeim fyrir starfsemi og húsakynnum Ljóssins. Við þökkum þeim innilega
Í október ár hvert er bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur, en með deginum er vakin athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár er lögð athygli á það sem hver og einn getur gert til að draga úr líkum á krabbameini. Eru konur hvattar til að að fara í þær reglulegu skimanir í leghálsi og brjóstum