Mánudaginn 26. febrúar verður kynning í Ljósinu á vörum og þjónustu frá Eirberg. Hjúkrunarfræðingur úr brjóstaþjonustu Eirbergs mætir til okkar með nýjar vörur m.a. brjóst, brjóstahaldara og sundfatnað. Kynninging verður í húsnæði Ljóssins við Langholtsveg 43 á milli kl. 10:30 -12:30
Mánudaginn 19. febrúar hefst námskeið fyrir unga aðstandendur krabbameinsgreindra. Um er að ræða ungmenni á aldrinum 14-16 ára. Á þessum aldri eiga sér of miklar breytingar stað og því nauðsynlegt að geta boðið upp á stuðningsnámskeið fyrir þennan aldurshóp þegar lífið bankar uppá með krabbamein hjá nánum aðstandanda. Námskeiðið sem verður í fimm hlutum er mótað með það fyrir augum
Miðvikudaginn 21. febrúar hefst námskeið fyrir fólk með langvinnt krabbamein. Námskeiðið er einu sinni í viku á milli kl. 14-16 og stendur í átta vikur. Þar verður farið í ýmis gagnleg atriði og m.a hvernig hægt er að auka jafnvægi í daglegu lífi, virkni og vellíðan. Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið. Námskeiðið hefur fengið mjög góða dóma
Mánudaginn 12. febrúar kl. 11 verður fræðslufundur í Ljósinu fyrir fólk sem fengið hefur brjóstakrabbamein. Farið verður yfir helstu fylgikvilla brjóstaaðgerða, hvernig sogæðakerfið er uppbyggt og fyrirbyggjandi ráðleggingar gefnar gegn sogæðabjúg á handlegg. Einnig verður kynntur æfingahópur sem kallaður er B hópurinn. Í þeim hóp eru konur sem greinst hafa með brjóstakrabbameina og æfa saman undir handleiðslu sjúkraþjálfara í tækjasal
Þann 4. febrúar er Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Til hans var stofnað í framhaldi af Heimsráðstefnu um baráttu gegn krabbameinum á nýju árþúsundi í París 4. febrúar 2000. Markmiðið með þessum degi er að vera með vitundarvakningu til að koma í veg fyrir milljónir ótímabærra dauðsfalla vegna sjúkdómsins, uppfræða og hvetja stjórnvöld og einstaklinga um heim allan til að skera upp herör
Miðvikudaginn 7. febrúar verður kynning á íslenskum höfuðfötum frá Mheadwear í Ljósinu. Kynninging hefst kl. 14. Mheadwear er hannað af Guðrúnu Hrund sem sjálf hefur gengið í gegnum það ferli að missa hárið í krabbameinsmeðfeð í þrígang og þekkir því vel til. Öll framleiðsla Mheadwear fer fram á Íslandi og hægt er að fá styrk frá Sjúkratryggingum Íslands við kaup
Föstudaginn 2. febrúar hefst fyrsta námskeiðið á þessari vorönn fyrir konur sem nýlega hafa greinst með krabbamein. Námskeiðið er í átta hlutum á föstudagsmorgnum á milli kl. 9:45 -11:45. Þessi námskeið hafa hlotið afar góða dóma bæði vegna þeirrar fræðslu sem þar er í boði og einnig vegna þeirra frábæru tengsla sem oft á tíðum myndast meðal þátttakenda. Fjöldi fagaðila
Hið sívinsæla barnanámskeið fyrir börn á aldrinum 6-13 ára sem eru aðstandendur krabbameinsgreindra hefst 15. febrúar n.k. Námskeiðið er í tíu skipti, einu sinni í viku, á virkum fimmtudögum á milli klukkan 16:30 – 18. Umsjón með námskeiðinu hafa Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðafræðingur og Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur. Á námskeiðinu er hópnum aldurskipt og ákveðin atriði tekin fyrir í hverjum
Það er gaman að segja frá því að forstöðukonan okkar, Erna Magnúsdóttir var boðin í viðtal á Rás 1 í morgun í morgunþátt Sigurlaugar Margrétar Jónsdóttur, ,,Segðu mér“. Sigurlaug skapar mjög þægilegt og afslappað andrúmsloft í þætti sínum og spyr skemmtilegra og áhugaverðra spurninga. Það er því óhætt að segja að gaman hafi verið að hlýða á þær stöllur fara
Þriðjudagsfyrirlesturinn verður 30. janúar kl. 14 og fjallar að þessu sinni um minnið. Kolbeinn Sigurjónsson frá Betra nám kemur til okkar í Ljósið og ræðir um minnið og nokkrar leiðir til að efla það. Eflaust verður hægt að taka nokkur verkfæri með heim í farteskinu til að hjálpa sér við að muna betur. Hver er ekki til í það?