Íris Frímannsdóttir

7
apr
2026

Þjálfarar Ljóssins á ráðstefnu 15.-17. apríl

Dagana 15.-17. apríl verður skerðing á stundatöflunni í líkamlegu endurhæfingunni, þar sem þjálfarar Ljóssins verða á Krabbameinsráðstefnu í Dublin. Mikilvægt er að meðferðaraðilar fylgist með nýjustu þróun og fræðslu í faginu svo við getum haldið áfram að bjóða upp á bestu mögulegu endurhæfinguna og stuðninginn fyrir þjónustuþega Ljóssins 💛   Hefðbundin stundaskrá í líkamlegu endurhæfingunni fellur niður þessa þrjá daga

Lesa meira

1
apr
2026

Lionsklúbburinn Engey styrkir Ljósið um nýjan snyrtistól

Við í Ljósinu fengum frábæra heimsókn í mars frá nokkrum konum úr Lionsklúbbnum Engey. Þær færðu Ljósinu rausnarlegan styrk sem fer upp í nýjan snyrtistól, sem mun nýtast vel í snyrtimeðferðið fyrir þjónustuþega. Gjöfin kemur á afar góðum tíma, þar sem lengi hefur staðið til að endurnýja snyrtistólinn. Innilegar þakkir fyrir stuðninginn, hlýhuginn og þá fallegu hugsun sem liggur að

Lesa meira

26
mar
2026

Tímamót: Ný hlutverk – Hefst 9. apríl

Námskeiðið tímamót – ný hlutverk hefst í Ljósinu 9. apríl. Námskeiðið er fjögur skipti, kl.14:00-15:30 á fimmtudögum. Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem er langt komið í endurhæfingu í Ljósinu og sér ekki fram á að snúa aftur út á vinnumarkaðinn eftir veikindin, hvort sem það er vegna langvarandi heilsufarsvanda og afleiðinga eða vegna þess að það er komið á

Lesa meira

25
mar
2026

Konur 46 ára og eldri hittast 14. apríl – fullbókað

Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri ætlar að hittast þriðjudaginn 14. apríl kl. 13:00. Ferðinni er heitið í Þjóðleikhúsið þar sem við fáum leiðsögn bak við tjöldin. Hittumst kl. 13:00 við aðalinngang Þjóðleikhússins og eftir fáum við okkur huggulegan kaffisopa að venju. Uppfært 10.04.2026: Fullbókað er í hittinginn.

25
mar
2026

Tilkynning vegna veðurs – 26. mars

Kæru vinir, Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Opið verður í Ljósinu en við hvetjum alla Ljósbera til að huga vel að veðurspám áður en haldið er út í daginn. Við biðjum

Lesa meira

23
mar
2026

Opnunartími yfir páskana

Ljósið fer í páskafrí frá og með 2. apríl og opnar aftur eftir páskafrí þriðjudaginn 7. apríl. Það er lokað í Ljósinu 2.-6. apríl: Fimmtudagur, 2. apríl (Skírdagur) – Lokað Föstudagur, 3. apríl (Föstudagurinn langi) – Lokað Mánudagur, 6. apríl (Annar í páskum) – Lokað Hafið það gott yfir hátíðirnar og gleðilega páska!

19
mar
2026

Má bjóða þér slakandi dvöl á Sólheimum 24.-28. ágúst? – FULLBÓKAÐ

Uppfært 23.02.2026: FULLBÓKAÐ er í ferðina. Bergmál líknarfélag býður þjónustuþegum Ljóssins að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir eða bara hlusta á fuglana á Sólheimum í Grímsnesi (Bergheimahúsi) vikuna 24.-28. ágúst. Gist er í tveggja manna herbergjum og er dvölin (gisting og matur) þjónustuþegum að kostnaðarlausu. Takmarkað framboð í boði. Skráning er hafin í móttöku Ljóssins og

Lesa meira

19
mar
2026

Góðgerðartónleikar til styrktar Ljósinu 23. mars

Mánudaginn, 23. mars kl. 20:00, verða haldnir tónleikar í Hljómahöll á vegum nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja (NFS) og Unglingaráðs Reykjanesbæjar, þar sem allur ágóði rennur til Ljóssins. Frábærir tónlistarmenn munu stíga á svið, meðal annars Klara Einarsdóttir, Eyþór Ingi, Blairstown og Sesselja Ósk, auk leynigestar. Hægt er að nálgast miða hér. Við í Ljósinu erum hjartanlega þakklát fyrir hlýhuginn og stuðninginn.

18
mar
2026

Sjálfboðaliðar í Gylfaflöt

Undanfarna daga hafa frábærir sjálfboðaliðar aðstoðað okkur við undirbúning á nýja húsnæði Ljóssins í Gylfaflöt. Sjálfboðaliðar frá bæði Oddfellow stúku nr. 1, Ingólfur og stúku nr. 10, Þorfinnur karlsefni. Fyrir okkur í Ljósinu er svona stuðningur afar mikils virði og það er dýrmætt að finna hversu þétt samfélagið stendur við bakið á okkur. Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir

Lesa meira

27
feb
2026

Blár mars í Grensáskirkju – dagskrá

Okkur í Ljósinu bárust þær ánægjulegu fréttir að í Grensáskirkju verður haldinn svokallaður Blár mars, þar sem málefni karla og krabbameins verða í forgrunni. Mánuðurinn er jafnframt tileinkaður stuðningi við Ljósið og Krabbameinsfélagið, og gefst gestum tækifæri til að leggja málefnunum lið. Fyrir hönd okkar í Ljósinu, hjartans þakkir fyrir þetta fallega framtak og þann hlýja stuðning sem okkur er

Lesa meira