Golfmót til góðs fyrir Ljósið – 3. júlí

Það styttist í einn skemmtilegasta viðburð sumarsins, sólstöðumót Guðlaugs (Lauga) sem haldið verður til styrktar Ljóssins.

Mótið verður haldið á Grafarholtsvellinum föstudaginn 3. júlí. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir golfáhugafólk að sameina leikgleði og góðgerðarmál í góðum félagsskap og á skemmtilegum golfvelli.

Allur ágóði rennur óskiptur til Ljóssins og því góð ástæða til að mæta, spila og styrkja mikilvægt starf.

📍 Staðsetning og tímasetning

  • Hvar? Grafarholtsvöllur (Golfklúbbur Reykjavíkur – GR)
  • Hvenær? Föstudagur 3. júlí kl. 18:45
    • Byrjað verður á máltíð í klúbbhúsinu kl. 18:45 (ath hver greiðir fyrir sig)
    • Að því loknu verður ræst út í punktamóti með 18 holum kl. 20:00

Við þökkum Golfklúbbi Reykjavíkur kærlega fyrir að leggja málefninu lið og veita völlinn að kostnaðarlausu. Einnig viljum við þakka Guðlaugi Magnússyni fyrir að skipuleggja þetta skemmtilega golfmót á hverju ári, algjör snillingur!

🏌️‍♀️ Hverjir geta tekið þátt?

  • Mótið er opið öllum, bæði félagsmönnum GR og öðrum. Mótsgjaldið er það sama fyrir alla:
    13.000kr
  • Þeir sem þurfa golfbíl af heilsubótarástæðum geta fengið slíkan, en golfbílarnir eru eingöngu ætlaðir þeim sem eiga erfitt með gang.

💳 Skráning og greiðsla

  • Mótsgjald: 13.000 kr.
  • Greiðslureikningur: 526-26-290366
  • Kennitala: 290366-3649
  • Staðfesting sendist á: laugim66@gmail.com

Vinsamlegast leggið mótsgjaldið inn fyrir mót og sendið netpóst með:

  • Nöfnum keppenda
  • Forgjöf hvers og eins

Við hlökkum til að sjá þig í Grafarholti 3. júlí!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.