Í byrjun maí fengum við frábæra heimsókn í Ljósið frá mótorhjólaklúbbnum Sober Riders MC á Íslandi. Meðlimir klúbbsins afhentu 750 þúsund króna styrk í starf Ljóssins. Valgý Arna Eiríksdóttir, iðjuþjálfi í Ljósinu, tók við styrknum.

Fjáröflunin tengist árlegri hefð Sober Riders MC á Íslandi á Þorláksmessu, þegar meðlimir klúbbsins bjóða vegfarendum á Laugavegi upp á hina svokölluðu „Andskötusúpu“ undir slagorðinu: „Við bjóðum engan viðbjóð.“
Súpan er ætíð ókeypis, en fólki gefst kostur á að styrkja gott málefni og samkvæmt tilkynningunni hafa þakklátir gestir sýnt framtakinu mikinn stuðning. Í ár rann ágóðinn til Ljóssins.
Við í Ljósinu viljum innilega þakka meðlimum Sober Riders MC á Íslandi fyrir stuðninginn, hann skiptir okkur miklu máli.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






