Í vikunni fór Ljósið í heimsókn í Snælandsskóla þar sem nemendur héldu góðgerðardag til styrktar góðu málefni. Eftir kosningu meðal nemenda var ákveðið að allur ágóði dagsins myndi renna óskiptur til Ljóssins. Nemendur skólans stóðu sig frábærlega í söfnuninni og alls söfnuðust 493.823 krónur. Suheel Mahad Omar, nemandi í 10. bekk, sem afhenti styrkinn fyrir hönd nemenda til Ernu Magnúsdóttur,
Góðgerðarráð NFVÍ (Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands) safnaði glæsilegum styrk, alls 700.000 kr., til styrktar Ljósinu. Ákvörðunin um að styrkja Ljósið kom bæði frá ráðinu sjálfu og samnemendum þeirra, en þegar leitað var eftir hugmyndum að mikilvægu málefni kom Ljósið hvað oftast upp. Fjáröflunin fór fram með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti, meðal annars með styrkjum frá fyrirtækjum og áheitum tengdum ýmsum
Lokað verður í Ljósinu á baráttudegi verkalýðsins föstudaginn 1. maí næstkomandi. Við hvetjum ykkur til þess að styðja verkalýðshreyfinguna og njóta dagsins. Við sjáumst svo aftur hress eftir helgina.
Jafningjahópur kvenna 46 ára og eldri ætlar að hittast þriðjudaginn 5. maí kl. 13:00. Ferðinni er heitið í Alþingishúsið. Hittumst við aðalinngang Alþingishússins og að venju fáum við okkur kaffi saman á eftir. Áhugasamir beðnir að skrá sig í móttöku Ljóssins.
Við í Ljósinu ætlum að fagna því að sumarið sé formlega komið og því er lokað hjá okkur Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl en við verðum hér aftur á föstudaginn. Þökkum ykkur öllum innilega fyrir veturinn og hlökkum til að eyða sumrinu með ykkur.
The course will take place on Monday 20th and 27th April at 10:00-11:45 and is conducted in English. It is meant for everybody who wants to find new ways of relaxing, find strength and inspiration from nature, meet peers in similar situation or just do something fun together. The course is in two-parts: In the first class we will do
Það er gaman að segja frá því að vegna mikillar eftirspurnar eftir tímum í slökun höfum við ákveðið að bæta við einum tíma. Frá og með þessari viku breytist jógatíminn kl. 11:00 á föstudögum í slökun, á meðan fyrri jógatíminn kl. 10:00 helst óbreyttur. Nýja dagskráin verður því eftirfarandi: Föstudagar: Jóga kl. 10:00 Slökun kl. 11:00 – Nýtt!
Aðalfundur Ljóssins verður haldinn fimmtudaginn 7. maí næstkomandi klukkan 16:30 í húsakynnum Ljóssins að Langholtsvegi 43. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Allir velkomnir. Kærar kveðjur, Stjórn Ljóssins
Dagana 15.-17. apríl verður skerðing á stundatöflunni í líkamlegu endurhæfingunni, þar sem þjálfarar Ljóssins verða á Krabbameinsráðstefnu í Dublin. Mikilvægt er að meðferðaraðilar fylgist með nýjustu þróun og fræðslu í faginu svo við getum haldið áfram að bjóða upp á bestu mögulegu endurhæfinguna og stuðninginn fyrir þjónustuþega Ljóssins 💛 Hefðbundin stundaskrá í líkamlegu endurhæfingunni fellur niður þessa þrjá daga
Við í Ljósinu fengum frábæra heimsókn í mars frá nokkrum konum úr Lionsklúbbnum Engey. Þær færðu Ljósinu rausnarlegan styrk sem fer upp í nýjan snyrtistól, sem mun nýtast vel í snyrtimeðferðið fyrir þjónustuþega. Gjöfin kemur á afar góðum tíma, þar sem lengi hefur staðið til að endurnýja snyrtistólinn. Innilegar þakkir fyrir stuðninginn, hlýhuginn og þá fallegu hugsun sem liggur að