Prjónahópur Ljóssins afhenti í dag Jónínu Sigríði Grímsdóttur frá Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, neistahúfur. Undanfarnar vikur hefur prjónahópurinn unnið að því að prjóna rauðar húfur sem afhentar verða öllum nýfæddum börnum vikuna 7.–14. febrúar. Þessi vika er alþjóðleg vitundarvika um meðfædda hjartagalla og eru rauðar húfur gefnar nýfæddum börnum þessa daga til að heiðra baráttu hjartveikra barna. Margir sjálfboðaliðar hafa
Alþjóðlegur dagur krabbameins er í dag, 4. febrúar. Dagurinn er alþjóðlegur árveknidagur um krabbameinstengd málefni. Dagurinn hefur tvíþættan tilgang, annars vegar sem vitundarvakning um krabbamein og veita fræðslu, og hins vegar hvatning til stjórnvalda og einstaklinga um allan heim að grípa til aðgerða gegn sjúkdómnum. Þema alþjóðlegu herferðarinnar er „United by Unique“. Krabbamein snertir milljónir lífa á ótal hátt en
Í febrúar verður nýtt pop-up námskeið, Í myndum og mildi. Námskeiðið snýst um að læra að sýna sjálfum sér meiri sjálfsmildi í daglegu amstri, með ljósmyndir sem verkfæri til íhugunar og tjáningar. Þátttakendur taka myndir úr daglegu lífi og aðstæðum til að miðla upplifun, tilfinningum, skoðunum og þörfum. Í tímum er lögð áhersla á fræðslu, umræðu og öruggt rými. Námskeiðið
Kæru vinir, Við erum stolt og þakklát að geta sagt frá því að Ljósið fær afhent nýtt húsnæði 1. febrúar! Húsið er staðsett við Gylfaflöt 5 í Grafarvogi. Þar er gott aðgengi, nóg af bílastæðum og fallegt útivistarsvæði í næsta nágrenni. Rýmið er um 1.300 fm, með möguleika á stækkun upp í allt að 1.700 fm í framtíðinni. Þetta er
Við viljum vinsamlegast minna gesti okkar á að gæta vel að eigum sínum meðan dvalið er í Ljósinu. Gott er að hafa verðmæti, svo sem síma, veski og lykla með sér eða setja á öruggan stað og forðast að skilja þau eftir í yfirhöfnum sem enginn hefur eftirlit með. Í íþróttahúsinu eru skápar sem hægt er að læsa og um
Karlmenn, 16-45 ára, hittast alla þriðjudaga kl. 12:00 þar sem þeir borða saman hádegismat og spjalla í afslöppuðu umhverfi. Þetta er frábært tækifæri til að hitta aðra karlmenn í svipuðum aðstæðum og eiga góðar samræður í öruggu og rólegu rými. Hægt er að lesa meira hér. Næsta þriðjudag, 27. janúar, mun Lilja næringarfræðingur koma og leiða fræðandi umræðu um næringu.
Uppboðinu á aðaltreyju íslenska landsliðsins í handbolta, áritaðri af strákunum okkar, lauk í gær kl. 12:00. Treyjan seldist fyrir 174.000 kr. og viljum við í Ljósinu innilega þakka öllum sem tóku þátt í uppboðinu, HSÍ og strákunum okkar. Sérstakar þakkir fær sá sem bauð hæst! Með þessum dýrmæta stuðningi er verið að styrkja það mikilvæga starf sem fer fram í Ljósinu.
Erum við að leita að þér? Við í Ljósinu erum að leita að iðjuþjálfa! Starfið er mjög fjölbreytt og felst í að hámarka daglega færni og auka þannig lífsgæði þjónustuþega. Mikil þróunarvinna á sér stað þar sem miðstöðin er ung og tekur sífelldum breytingum. Vinnuumhverfið er líflegt og skemmtilegt. Það veitir einnig tækifæri til að taka þátt í mótun þjónustu
Jafningjahópur fyrir konur 46 ára og eldri, hittist þriðjudaginn 3. febrúar kl. 13:00 á Hvalasafninu (Fiskislóð 23-25, 101 Reykjavík). Við fáum 30 mínútna leiðsögn og aðgangseyrir er 2150 kr. Á eftir munum við kíkja á Kaffivagninn og eiga notalega stund saman. Vinsamlegast skráið þátttöku í afgreiðslu Ljóssins í síðasta lagi 2. febrúar.
Frá og með 22. janúar til 26. mars verður boðið upp á slökun á fimmtudögum kl. 14:00 í græna sal Ljóssins. Þann 12. mars verður ekki tími, vegna fræðsluerindis. Slökun er góð leið til að auka vellíðan, draga úr álagi, bæta svefn og auka lífsgæði. Þátttakendur koma sér þægilega fyrir á dýnu eða stól og þurfa ekkert að aðhafast annað