Í dag fengum við yndislega heimsókn frá þeim Rannveigu Thoroddsen og Svövu Haraldsdóttur, fyrir hönd Soroptimistaklúbbsins Bakka og Selja. Þær afhentu styrk til Ljóssins í minningu Elsu Sifjar Guðmundsdóttur, dóttur Svövu, sem lést 8. mars síðastliðinn.
Við sendum okkar hlýjustu þakkir fyrir styrkinn og einlægar samúðarkveðjur til allra aðstandenda.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






