heida

9
feb
2022

Myndlistarmenn Ljóssins athugið!

Kæru vinir, Nú leitum við til ykkar sem hafa lokið námskeiði í myndlist í Ljósinu. Við vinnum að gerð tækifæriskorta sem fjáröflun fyrir starfsemi Ljóssins. Hugmyndin er hafa myndir á kortunum eftir hópinn okkar góða sem hefur verið í myndlist hjá okkur. Við stefnum á að gera 5 mismunandi myndakort sem verða merkt Ljósinu og höfundi verksins. Þeir sem hafa

Lesa meira

9
feb
2022

Að eiga mömmu eða pabba með krabba

Þegar Valdimar Högni Róbertsson 8.ára fékk þær fréttir að pabbi hans hefði greinst með krabbamein, fékk hann þá hugmynd að gera hlaðvarpsþátt til þess að fræða sig og og aðra unga aðstandendur um sjúkdóminn og afleiðingar hans. Í hlaðvarpinu sem ber heitið Að eiga mömmu eða pabba með krabba býður hann til sín góðum gestum, bæði fagaðilum, aðstandendum og öðrum

Lesa meira

26
jan
2022

Grunnfræðsla fyrir landsbyggðina hefst miðvikudaginn 2. febrúar

Nú styttist í að grunnfræðslan fyrir landsbyggðina hefjist, námskeiðið hefst 2. febrúar næstkomandi og fer fram alla miðvikudaga frá kl.13:00-15:00 – á ZOOM. Umsjón með námskeiðinu hefur Unnur María Þorvarðardóttir deildarstjóri landsbyggðardeildar Ljóssins.  Markmið námskeiðsins er að veita fræðslu og kynna bjargráð sem geta gagnast í kjölfar krabbameinsgreiningar. Auk þess að skapa vettvang fyrir umræður meðal jafningja.    Hér að

Lesa meira

18
jan
2022

Breytingar á námskeiðum vegna Covid

Kæru vinir, Í kjölfar breyttra sóttvarnarreglna, hefur aðgengi að húsum Ljóssins  verið takmarkað og því er aðeins opið fyrir þá sem eiga pantaða tíma. Einnig höfum við fært ýmis námskeið á Zoom eða frestað þeim fram í febrúar.   Breytingar hafa orðið á eftirfarandi námskeiðum: Grunnfræðsla fyrir konur hefur verið flutt á Zoom. Salurinn er opinn fyrir þá sem ekki

Lesa meira

11
jan
2022

Fjarþjálfun fyrir fólk á landsbyggðinni

Nú er vorönninn í Ljósinu komin af stað með ýmislegt spennandi og nýtilegt í boði fyrir okkar fólk. Landsbyggðardeildin verður með fjarþjálfun á Zoom tvisvar í viku, fyrir þjónustuþega Ljóssins á landsbyggðinni. Markmið námskeiðsins er auka aðgengi að þjálfarateymi okkar og bjóða upp á æfingar heima í stofu. Æfingarnar eru aðlagaðar að getu hvers og eins og krefjast ekki sérstaks tækjabúnaðar,

Lesa meira

6
jan
2022

Leitað að þátttakendum í rannsókn um mikilvægi sjúkraþjálfunar eftir meðferð við brjóstakrabbamein

Óskað er eftir konum á aldrinum 30-67 ára til að taka þátt í ofangreindri rannsókn. Vonast er eftir a.m.k. 20-50 þátttakendum sem hafa lokið brjóstakrabbameinsmeðferð á síðastliðnum þremur árum. Þátttaka í rannsókninni felur í sér að svara spurningalista rafrænt. Engin áhætta er talin fólgin í þátttöku í þessari rannsókn. Tilgangur rannsóknarinnar er að rannsaka notkun á og gagnsemi sjúkraþjálfunar meðal

Lesa meira

22
des
2021

Jólakveðja

Kæru vinir Við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár.Megi hátíðarnar færa ykkur öllum góðar stundir með fjölskyldu og vinum. Við hugsum með þakklæti til allra góðu stundanna sem við höfum átt með ljósberum, aðstandendum og velvildarfólki Ljóssins á árinu sem er að kveðja. Ljósið er lokað á milli jóla og nýárs, við opnum aftur þann 5.janúar

Lesa meira

14
des
2021

Stjórnendafélag Suðurlands kom færandi hendi

Ljósið fékk góða heimsókn í dag, þar sem tveir fulltrúar frá Stjórnendafélagi Suðurlands á Selfossi komu færandi hendi með veglegan styrk í starf Ljóssins. Virkilega fallegt framtak, og þökkum við hjá Ljósinu innilega fyrir styrkinn og góða heimsókn.    

10
des
2021

Gjafakort í starf Ljóssins undir tréð?

Áttu eftir að kaupa jólagjöfina fyrir þann sem á allt og vantar ekkert? Langar þig að gefa gjöf til góðra verka? Ljósið býður ykkur uppá að kaupa gjöf sem sannarlega gefur áfram. Styrk í fjölskyldustarf Ljóssins eða í endurhæfingu unga fólksins okkar. Gjafabréfin má versla á vefsíðu Ljóssins hér, en þar getur hver og einn valið hvort hann vilji styrkja

Lesa meira

10
des
2021

Hó hó hó, mættu jólalegur í Ljósið

Kæru vinir, Í næstu viku, dagana 15. – 17.desember ætlum við að vera á jólalegu nótunum í Ljósinu. Við hvetjum alla bæði starfsfólk og þá sem heimsækja Ljósið að koma jólaleg í hús. Þetta þarf ekki að vera flókið, það er ýmislegt hægt að gera  einfalt en gott í þeim málum. Jólasokkar, eyrnalokkar, jólapeysur, húfur, hægt er að hengja á

Lesa meira