Orlofsvika í Bergheimum fyrir þjónustuþega Ljóssins

Bergmál líknarfélag býður þjónustuþegum Ljóssins að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir eða bara hlusta á fuglana á orlofsviku á Sólheimum (Bergheimar í Grímsnesi) í júní. Boðið verður upp á kvöldvökur á hverju kvöldi.

Bergheimar er í eigu Bergmáls líknarfélags og á hverju sumri bjóða þau fólkinu okkar upp á ókeypis orlofsvikur. Árið 2019 fór stór hópur frá Ljósinu og það er aftur í boði í ár.

Um er að ræða vikuna 21.-28. júní næstkomandi en skráning er hafin í móttöku í síma 561-3770. Opið er fyrir skráningar til 4. maí næstkomandi.

Mæting er á þriðjudegi klukkan 14:00 og brottför á þriðjudegi klukkan 12:00.

Gist er í tveggja manna herbergjum með klósetti, sturtu og sjónvarpi.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.