Fréttir

16
jan
2009

Fullorðnir aðstandendur

Námskeið fyrir fullorðna aðstandendur sem eiga fjölskyldu eða ættinga sem hefur greinst með krabbamein Námskeiðið hefst fimmtudaginn 12 febrúar.   Við bjóðum nú uppá 8 vikna námskeið fyrir aðstandendur.  Þessi námskeið hafa verið mjög vinsæl og fólk mælir með þeim.   Námskeiðið er ókeypis. Skráning fer fram hjá starfsfólki Ljóssins síma 5613770

16
jan
2009

Ný námskeið

         Smellið á myndina til að skoða betur. (opnast sem pdf)

15
jan
2009

Ný stundaskrá

Nýja stundaskráin okkar er loksins komin á netið  tilbúin til útprentunar. Það ættu flestallir að finna eitthvað við sitt hæfi, þá er bara að drífa sig á stað til okkar, hlökkum til að sjá ykkur. Nýja stundaskráin er hér

12
jan
2009

Heilsuefling

  Heilsuefling                  Spennandi fræðslutímar  um heilsu og lífsstíl. Námskeiðið byrjar 2. febrúar og eru skipulagðir fræðslutímar út mars. Markmið: Kynntar verða ýmsar hugmyndir, kenningar og  vangaveltur um heilsu. Kynning á hvernig takast á við breytingar í lífinu, lífsviðhorf rætt, sjálfstraust, geðorðin 10 tekin fyrir, markmiðssetning og óskaspjöld, auk þess sem bjargráð verða í brennidepli. Hvert umræðuefni verður kynnt í byrjun

Lesa meira

9
jan
2009

Spilavinir

   Spilaklúbbur föstudögum kl  13:30 – 16:00 Markmið spilahópsins .Eiga ánægulega og skemmtilega stund saman til þess að koma okkur í gott skap fyrir helgina.Ræða um hvaða spil gæti verið gaman að spila – fá hugmyndir hópmeðlima að spilum hvort sem er borðspil eða venjuleg spil.„Kenna/læra“ mismunandi spil sem ýmist ég kenni eða aðrir meðlimir hópsins.  

8
jan
2009

Fluguhnýtingar

  Minnum á að fluguhnýtingarnar byrja aftur þriðjudaginn 13. febrúar kl:19.30

5
jan
2009

Nýtt ár

Gleðilegt ár með þökk fyrir það gamla Starfsemin fer á fullt á morgun þriðjudag 6 janúar.  Við verðum með jógatímana kl. 10 og 11:10, gönguhópinn og handverkshúsið. Byrjum í leikfiminni á miðvikudag 7 jan. Ungliðahópurinn 50 ára og yngri byrjar á fimmtudag kl. 13:30 Það er nú þegar hægt að panta tíma í heildrænt nudd. Það verður smá breyting á

Lesa meira

22
des
2008

Jólakveðja

 Ljósið endurhæfingar og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra sendir    bestu óskir um gleðilega jólahátíð,og farsæld á komandi ári  megi ljós og friður lifa með okkur öllum   Jólakveðjur Starfsfólk Ljóssins

15
des
2008

Tilkynning

Okkur langar að koma eftirfarandi á framfæri: Fluguhnýtingarhópurinn er kominn í jólafrí, en byrjar aftur þriðjudaginn 13 janúar kl. 19:30. Hugleiðsla með Lótushúsi verður í síðasta skipti fyrir jól föstudaginn 19 des kl. 12:30.

10
des
2008

Jólastund í Ljósinu

Það verður sannkölluð jólastemning hjá okkur á morgunn fimmtudag, kl 13:30 verður lesin jólasagan Hlutaveikin eftir þórarinn Eldjárn, sem er fyndin og skemmtileg jólasaga fyrir alla aldurshópa. Það tekur um 20-25 mínútur að lesa hana.  Heitt kakó og smákökur á eftir.  Endilega takið fjölskyldumeðlimi með. Sú sem les heitir Guðfinna Rúnarsdóttir og langar hana að gefa Ljósinu þennan upplestur í

Lesa meira