Höfuðljósin fyrir Ljósafoss eru komin í hús

Steindór Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Dynjanda, kom í heimsókn til okkar í Ljósið og færði okkur höfuðljós fyrir Ljósafossinn.

Vinir okkar hjá Dynjanda hafa stutt við bakið á Ljósinu í mörg ár og erum við ótrúlega þakklát fyrir hlýjuna og stuðninginn sem þau sýna okkur ár eftir ár.

Höfuðljósin eru nú komin í sölu í afgreiðslu Ljóssins og rennur allur ágóði af sölunni beint til starfsemi Ljóssins.

Endilega kíkið til okkar og nælið ykkur í ljós fyrir gönguna, svo við getum saman lýst upp Esjuna í Ljósafossinum!

Hægt er að skoða viðburðinn með því að ýta hér.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.