Maraþonþakkir að uppskeruhátíð lokinni

Í gær lauk maraþongleðinni í ár formlega þegar Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íslandsbanki buðu góðgerðafélögum og öðru góðu fólki í létta uppskeruhátíð. Frá Ljósinu mætti Erna Magnúsdóttir, framkvæmdarstýra, og Regína Björk Jónsdóttir, þjónustu- og samskiptastjóri, til þess að taka móti viðurkenningu en Ljósið var söfnunarmesta góðgerðarfélag Hlaupastyrks í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2026. Lokaupphæðin nam heilum 38.077.599 kr og er metsöfnun Ljóssins frá upphafi!

Þrjú efstu góðgerðarfélögin í ár voru:

  1. Ljósið safnaði í heild 38.077.599 kr
  2. Börn með Krabbamein safnaði í heild 19.935.882 kr
  3. Píeta samtökin 16.025.412 kr

Reykjavíkurmaraþonið er einn stærsti fjáröflunarliður Ljóssins og þessi stuðningurinn skiptir okkur öllu máli. Í ár hlupu frábærir hlauparar fyrir Ljósið, á öllum aldri og dreifðust þeir á allar vegalendir, allt frá skemmtiskokki til heils maraþons og náðu að safna 6.294 áheitum. Við erum svo ótrúlega þakklát og stolt af þessum frábæra stuðningi.

Það er líka sérstaklega gaman að segja frá því að tveir hlaupahópar sem hlupu fyrir Ljósið í ár, Karfarnir og Team Albert, voru meðal þriggja söfnunarhæstu hlaupahópa Reykjavíkurmaraþonsins í ár. Þvílíkur árangur, takk fyrir ykkur!

Þrír efstu hlaupahóparnir í ár voru:

  1. Til minningar um Sólveigu Huldu fyrir Hollvinasamtök SAk – 7.670.000 kr
  2. Karfarnir fyrir Ljósið – 1.771.000 kr
  3. Team Albert fyrir Ljósið – 1.486.000 kr

Við viljum senda innilegar þakkir til allra þeirra sem hlupu, hvöttu og styrktu sitt fólk og Ljósið, í Reykjarvíkurmaraþoninu í ár. Þið eruð ómetanleg og hjálpið okkur að gera Ljósið að enn öflugari endurhæfingu!

 

Aldrei hefur safnast jafn mikið fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoniniu!

Erna Magnúsdóttir framkvæmdarstýra og Regína Björk Jónsdóttir þjónustu- og samskiptarstjóri tóku alsælar á móti ávísuninni

 

Góðgerðafélögin voru kát og klökk við móttöku styrkjana.

Bergur Kristinsson að afhenda Ernu Magnúsdóttur ávísun fyrir hönd hlaupahópsins Karfarnir. 

Team Albert fékk einnig heiðursávísun fyrir frábæra söfnun.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.