Haustið í Ljósinu

Heil og sæl kæru vinir,

Við í Ljósinu fögnum hverri árstíð og förum spennt inn í haustið sem sannarlega hefur sinn sjarma. Haustdagskrá Ljóssins býður uppá mikið úrval af dagskrárliðum, þjónustuþegar okkar ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Hér að neðan stiklum við á stóru á því sem í boði er.
Við hvetjum ykkur eindregið til að kynna ykkur dagskrána og skrá ykkur í þá liði sem henta.

Hér má sjá stundaskrá Ljóssins fyrir september.

 

Samtalið heim
Á námskeiðum í Ljósinu hefur oft verið rætt hversu þarft og gott það væri fyrir þjónustuþega og aðstandendur að vera saman á fræðslu. Sérstaklega þar sem oft er erfitt að yfirfæra upplýsingar og upplifanir heim. Þegar tveir hlusta saman er einnig hægt að ræða fyrirlesturinn þegar heim er komið án þess að þurfa að endursegja hann. Fræðslan fer fram í húsnæði Ljóssins við Langholtsveg en er einnig streymt í gegnum ZOOM. – Meira hér

Fræðsla á ZOOM
Zoom fræðslan er fyrst og fremst ætlað fólki á landsbyggðinni og þeim sem hafa ekki tök á að sækja fræðslu í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi. Markmið fræslunnar er að fólk í svipuðum sporum fái fræðslu, taki þátt í umræðum og fái þannig stuðning til að takast á við breytingar í kjölfar greiningar.
13. september – Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi og Louisa Sif Mønster, iðjuþjálfi – Daglegar venjur
20. september – Indíana Rós, kynfræðingur
27. september – Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi – Stjórnun álags og streitu.

Meira hér

 

Þrautseigja
Markmiðið með námskeiðinu er að leiðbeina þátttakendum í aðferðum til að efla sjálfan sig í andlegri þrautseigju (e. resilience) og að auka innri styrk með gagnreyndum (e. evidence based) aðferðum frá sálfræðinni. Rannsóknir hafa sýnt að hver sem er getur aukið andlega þrautseigju sína með því að læra ákveðna færni.Hefst 6.september 2023, miðvikudagar kl. 13:30-15:00
Umsjón: Elín Kristín Klar, sálfræðiráðgjafi

Meira hér

 

Aftur til vinnu eða náms
Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og er á leið til vinnu eða náms á ný eftir veikindi. Námskeiðið er liður í endurhæfingu Ljóssins og hentar þeim sem vilja vera betur í stakk búnir til að mæta aftur til vinnu, náms eða nýrra verkefna. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Hefst 14. september 2023, fimmtudagar kl. 13:45-15:45
Umsjón: Guðbjörg Dóra, iðjuþjálfi og Anna Sigga, iðjuþjálfi

ATHUGIÐ AÐ FRÆÐSLAN FER FRAM BÆÐI Á ZOOM OG Í LJÓSINU LANGHOLTSVEGI.

Meira hér

 

Aðstandendanámskeið
Um er að ræða námskeið þar sem skapaður er vettvangur fyrir aðstandendur frá 18 ára til að hittast og ræða um reynslu sína, áhyggjur og þá líðan sem fylgir því að eiga náinn ástvin sem greinist með alvarlegan sjúkdóm. Mikilvægt er að skapa traust og tryggja trúnað til að þátttakendur geti óhindrað tjáð sig um það sem liggur á þeim.

Námskeiðið hefst 12. september 2023 og er á þriðjudögum kl. 16:30
Umsjón: Guðrún Friðriks iðjuþjálfi og Elín Kristín Klar sálfræðiráðgjafi

Meira hér

 

Hreyfing og þjálfun
Það verður þétt og mikil dagskrá hjá þjálfurum Ljóssins í haust.

Við sjáum nokkra dagskrárliði mæta aftur á stundaskránna eftir sumarfrí. Þolþjálfunin verður í hádeginu þrisvar í viku. Þol og styrkur byrjar aftur tvisvar í viku, hóptími fyrir unga fólkið 16-45 ára verður tvisvar i viku.

Gönguþjálfunin og jafnvægistímarnir verða á sínum stað. Gangan hentar fólki á flestum getustigum og jafnvægistímarnir henta þeim sem finna fyrir truflun á jafnvægi í kjölfar aðgerða eða meðferða.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur stundaskránna hér.

 

Jafningjahópar

Karlmenn 46+ hittast á föstudögum kl. 12:00
Konur 46+ hittast 5. sept, dagskrá auglýst síðar.
Fólk með langvinnt krabbamein hittist 27. sept kl.12:00

Karlmenn 16-45 ára hittast á þriðjudögum kl.11:00 á æfingu og fara saman í hádegismat kl.12:00. Hefst 12. sept

Konur 16-45 ára hittast alla mánudaga kl.12:00.
Leshópur hefst aftur eftir sumarfrí 4.september á Cafe Milano kl.?.

Smelltu hér til að kynna þér jafningjahópa Ljóssins

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.