Fræðslan í streymi er fyrst og fremst ætluð fólki á landsbyggðinni og þeim sem hafa ekki tök á að sækja fræðslu í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi.
Markmið
Að fólk í svipuðum sporum fái fræðslu, taki þátt í umræðum og fái þannig stuðning til að takast á við breytingar í kjölfar greiningar. Umsjón með námskeiðinu hafa iðjuþjálfar í Ljósinu, en auk þeirra halda fagaðilar fyrirlestra um sín sérsvið og stýra umræðum.
Á námskeiðinu verður fjallað um aðstæður og úrlausnir þegar það verða breytingar á lífinu, hvernig greining og meðferð geta haft áhrif á líðan, hvernig hægt sé að efla eigin heilsu og mikilvægi þess að viðhalda og byggja upp orku, þrek, samskipti, nánd og kynhegðun og auðvitað hvernig við sköpum áhugaverða framtíðarsýn.
Þessi námskeið hafa skapað mikla samkennd og veitt þátttakendum mikinn jafningjastuðning í gegnum árin.
Maí – Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi
6. maí – Matti Ósvald Stefánsson, markþjálfi – Listin að velja sig
13. maí – Alda Pálsdóttir, iðjuþjálfi – Taugakerfið
20. maí – Louisa Sif Mønster, iðjuþjálfi – Sumarrútína og daglegar venjur
27. maí – Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi – Að virkja nærumhverfið
NÆSTU NÁMSKEIÐ
Hefst 6. maí
Miðvikudagar kl. 14:00 – 15:30, í 4 skipti
Umsjón: Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi

