Það var mikil gleði í Ljósinu fyrr í vikunni þegar starfsfólk L’Occitane en Provence færði Ljósinu afrakstur styrktarverkefnis sem fram fór í upphafi árs. Alls söfnuðust 150.000 krónur við sölu á handáburði og fótakremi sem klædd höfðu verið í sérhannaðar ullarstúkur. Stúkurnar voru handprjónaðar af einstaklingum sótt hafa endurhæfingu í Ljósið og fulltrúum frá L’Occitane. Það var Kristjana Björk Traustadóttir
Síðdegis í dag fengum við góða gesti í Ljósið þegar fulltrúar Kiwanisklúbbsins Heklu litu við og færðu Ljósinu 300.000 króna styrk í endurhæfingarstarfið. Kiwanisklúbburinn Hekla er elsti Kiwanisklúbbur landsins og hefur frá upphafi Ljóssins verið dyggur stuðningsaðili. Við sendum okkar bestu þakkir til allra þeirra sem stóðu að söfnuninni. Það voru Ingólfur Friðgeirsson, Sighvatur Halldórsson, Garðar Hinriksson og Ólafur G.
Kæru vinir, Í síðustu viku greindum við ykkur frá því að einhverjir Ljósavinir væru að lenda í því að styrktarupphæð væri ekki að birtast á skattskýrslum þeirra. Leiðréttinging er komin í gegn en samkvæmt ráðleggingum frá Deloitte biðjum við alla sem eru enn ekki að sjá Ljósið í sinni skýrslu að bæta við eftirfarandi athugasemd í sitt framtal: Vantar almannaheillastyrk
Kæru vinir, Nú er sá tími ársins sem einstaklingar eru að vinna í að skila skattskýrslunum sínum. Það er sannarlega ánægjulegt að okkar góðu styrktaraðilar geti sótt skattafrádrátt ef um er að ræða árlegar greiðslur yfir tíu þúsund krónur. Við höfum því miður lent í kerfisvillu við flutning á gögnunum okkar til skattsins. Það hafa því einhverjir ekki fengið styrkupphæðina
Í vikunni kom leirlistakonan Melkorka Matthíasdóttir við hjá okkur á Langholtsveginn og afhenti upphæð sem safnaðist við uppboð á listmun sem var hluta af nýafstaðinni sýningu Melkorku í Listasalnum í Mosfellsbæ. Framlag Melkorku er þakklætisvottur fyrir þau jákvæðu áhrif sem Ljósið hefur haft á líf Melkorku frá því að hún sótti endurhæfingu til okkar á Ljósið. „Hér er örlítill
Kæru vinir, Nú er Öskudagurinn miðvikudaginn næstkomandi 22.febrúar. Við í Ljósinu ætlum að sjálfsögðu ekki að láta þennan skemmtilega dag framhjá okkur fara. Starfsfólk Ljóssins mætir í sínu „skemmtilegasta pússi“. Við hvetjum þjónustuþega okkar að finna til hattinn, slæðuna, trúðanefið eða skemmtilega búninginn og eiga með okkur glaðan dag. Það verður skemmtilegur myndakassi á staðnum, sem fangar gleðina. Við getum
Lionsklúbburinn Njörður kom færandi hendi í dag og afhenti Ljósinu glænýtt spinning hjól. Forsvarsmenn Lionsklúbbsins höfðu samband við Ljósið í kjölfar þess að góður félagi hafði sótt endurhæfingu til okkar á Langholtsveginn í kjölfar krabbameinsgreiningar, en hann óskaði að eftir sinn dag myndu þeir sem vildu minnast hann hugsa til Ljóssins. Því til viðbótar hafði maki eins meðlims einnig sótt
Að greinast með krabbamein er fyrir flesta mikið áfall, og eðlilegt að fólk takist á við erfiðar hugsanir í kjölfar greiningar. Á næsta fyrirlestri í fræðsluröðinni Samtalið heim, mun Elín Kristín Klar, sálfræðiráðgjafi í Ljósinu, ræða hvernig streita og erfiðar hugsanir geta herjað bæði á þann sem greinist með krabbamein sem og aðstandendur. Elín settist niður og sagði okkur aðeins
Á dögunum barst Ljósinu styrkur frá flugfélaginu Norðurflug. Styrkurinn er afrakstur átaks Norðurflugs sem lét hluta af hverri ferð í desember renna til Ljóssins. Virkilega fallegt framtak og vel tekið á móti fulltrúum Ljóssins við afhendingu styrksins í höfuðstöðvum Norðurflugs. Ljósið sendir hjartans þakkir fyrir framtakið.
Það var glatt á hjalla á Grandhóteli fyrr í vikunni þegar Ljósið endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og Alzheimersamtökin tóku við veglegum styrkjum frá Hárgreiðslumeistarafélagi Íslands. Fyrr í mánuðinum var sú ákvörðun tekin að slíta skyldi félaginu og að fjármunir úr sjóði félagsins myndu renna til mikilvægra málefna. Þótti við hæfi að fyrir valinu yrðu félög sem leidd eru af konum en