Fimmtudagana 21. og 28. nóvember verða máluð vönduð keramik jólatré hér í Ljósinu. Nauðsynlegt er að skrá sig í þetta handverk fyrir 15. nóvember. Trén koma í tveimur stærðum og fást keypt hjá okkur í móttökunni. Margir litir af akríl í boði svo þátttakendur geta látið ímyndunaraflið fá lausan tauminn. – Lítið keramik tré 3500 krónur – Stórt tré 4000
Kæru vinir, Senn líður að jólum og því höldum við hátíðlegt aðventukvöld Ljóssins miðvikudaginn 27. nóvember klukkan 19:30. Á jólakvöldinu hittast ljósberar, aðstandendur og starfsfólk Ljóssins og eiga saman notalega stund. Sem áður verður spennandi dagskrá: Óskar Guðmundsson les úr nýjustu bók sinni Boðorðin Guðrún Árný mun syngja nokkur jólalög Handverkssalan verður á sínum stað Girnilegar veitingar í boði Við
Þriðjudaginn 19. nóvember n.k. fáum við góða gesti í heimsókn til okkar í Ljósið. Það eru forsvarsmenn Bergmáls, líknar- og vinafélags, en tilgangur félagsins er m.a. að hlúa að krabbameinsgreindum. Heimsókn þeirra er jafnframt liður í fjáröflun félagsins og því koma þau hlaðin gómsætum sultum og hugsanlega einhverju fleiru sem þau bjóða gestum og gangandi að kaupa. Þetta er í
Hinn árlegi Ljósafoss niður hlíðar Esjunnar mun eiga sér stað laugardaginn 16. nóvember næstkomandi. Í ár fögnum við 10 ára afmæli Esjuævintýranna okkar og ætlum því að hafa enn meira húllumhæ áður en við förum í fjallið. Eins og alltaf hittumst við við Esjustofu og við byrjum að hita upp klukkan 15:00 þegar Ari Eldjárn stígur á svið og lætur
Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa mun í ár selja falleg jólakort til styrktar Ljósinu. Í morgun litu fulltrúar Oddfellowa við í Ljósinu með fyrstu prentun af jólakortunum sem verða til sölu í móttöku Ljóssins og í vefverslun Ljóssins. Kortin eru seld 10 saman í pakka ásamt umslögum. Hver pakki kostar 2000 krónur og rennur upphæðin óskipt til Ljóssins. Myndin á kortinu
Síðastliðinn þriðjudag leit Sesselja Sigurðardóttir við hjá okkur í Ljósinu og afhenti rausnarlega peningagjöf sem vinir og ættingjar hennar lögðu til þegar hún hélt upp á 90 ára afmælið sitt nýverið. Sesselja þekkir vel til starfs Ljóssins en til okkar hafa nánir fjölskyldumeðlimir hennar sótt þjónustu. Það var mikið fagnað í myndlistinni, sem þá var í gangi í salnum, þegar
Föstudaginn 18. október ætlar starfsfólk Ljóssins að efla liðsheildina og því verður lokað í Ljósinu þann daginn. Það er partur af starfsmannastefnu Ljóssins að tryggja góðan anda meðal starfsmanna og styrkja teymisvinnu en það skilar sér í enn betri þjónustu til Ljósbera og aðstandenda. Árlegt hópefli starfsfólks Ljóssins er partur af því starfi. Við opnum aftur mánudaginn 21. október.
Við segjum það oft í Ljósinu að við séum umkringd dásamlegu fólki sem geri það að verkum að endurhæfingarstarfið blómstri líkt og það gerir. Alexandra Helga er ein af þeim en í byrjun september ákvað hún að taka til í fataskápnum og halda í Trendport, sem er vettvangur fyrir fólk sem vill selja notaðar flíkur, með það að markmiði að
Síðastliðinn föstudag kom Elín Skúladóttir, skipuleggjandi ráðstefnunnar Vegan heilsa, til okkar í Ljósið og flutti erindi um rannsóknir á mataræði og heilsu og hvernig hún hafi breytt um lífsstíl í kjölfar þess að hún greindist með krabbamein. Elín sagði frá bókum og rannsóknum á mataræði í tengslum við krabbamein og meðferðir, og hvernig hún hafi tekið ákvörðun um að fá
Fimmtudaginn 7. nóvember munu þjálfarar Ljóssins bjóða upp á fræðslu fyrir konur sem hafa farið eða eru að fara í skurðaðagerð á brjóstasvæði vegna krabbameins. Fjallað verður um líkamlega endurhæfingu, hreyfingu og þjálfun og hvað beri að passa upp á í framhaldi aðgerða á brjóstum. Rætt verður um breytingar sem eiga sér stað á líkamanum og um mögulega fylgikvilla aðgerða