Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa selur kort til styrktar Ljósinu

Styrktar- og líknarsjóður Oddfellowa mun í ár selja falleg jólakort til styrktar Ljósinu.  Í morgun litu fulltrúar Oddfellowa við í Ljósinu með fyrstu prentun af jólakortunum sem verða til sölu í móttöku Ljóssins og í vefverslun Ljóssins.

Kortin eru seld 10 saman í pakka ásamt umslögum. Hver pakki kostar 2000 krónur  og rennur upphæðin óskipt til Ljóssins.

Myndin á kortinu er eftir Pál Ólafsson og er tekin í Hafnarfirði og í hverjum pakka eru 10 kort og 10 umslög.

Á vinstri opnu má finna ljóðið Ljósið eftir Dag St. Ásgeirsson

Ljósið yljar lífið vekur,
Ljósið veitir mönnum sýn.
Ljósið burtu leiðann rekur,
Ljósið það er hjálpin mín.

Á hægri opnu má finna eftirfarandi hátíðarkveðjur:

Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár með þökk fyrir það liðna.

Við vekjum sérstaka athygli á því að fyrirtæki geta fengið sérprentaðan texta inn í kortin, en pantanir þurfa að berast Oddfellowum fyrir 3. desember.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.